Fleiri konur en karlar smituðust af HIV í fyrra 18. febrúar 2008 17:13
Þrettán einstaklingar greindust með HIV-smit á síðasta ári samkvæmt því sem fram kemur í nýjasta hefti Farsóttarfrétta frá Landlæknisembættinu. Þá greindust óvenjumargir með lifrarbólgu B á síðasta ári. Líklegt var talið að smit tengdist fíkniefnaneyslu í æð í sex tilfellum. Í fjórum tilfellum var smit talið tengjast kynmökum gagnkynhneigðra og í þremur tilvikum kynmökum samkynhneigðra. Af þeim sem greindust á árinu voru sjö konur en þetta er í fyrsta sinn sem fleiri konur greinast með HIV-smit en karlar á Íslandi. Vakin var athygli á því í Farsóttafréttum í nóvember 2007 að óvenju mörg HIV-tilfelli tengdust fíkniefnaneyslu og líkur leiddar að því að um hópsýkingu gæti verið að ræða.Veirufræðideild Landspítalans hefur unnið að samanburði HIV-stofna sem greindust á árinu 2007. Niðurstöður þessara rannsókna sýna að einungis tveir einstaklingar sem sprautuðu sig reyndust vera með sama veirustofn. Þessar niðurstöður benda því tilað ekki hafi verið um eiginlegahópsýkingu að ræða meðal fíkniefnaneytenda á árinu 2007.Landlæknir segir enn fremur að áfram verði fylgst náið með útbreiðslu HIV-smits meðal fíkniefnaneytenda því að nái HIV-smit fótfestu í þessum áhættuhópi má búast við stóraukinni útbreiðslu sjúkdómsins hér á landi.Fjörutíu og fimm greindust með lifrarbólgu BÓvenju margir greindust með lifrarbólgu B á árin 2007, eða 45 manns. Um helmingur þeirra voru innflytjendur og vitað var um átta sem höfðu sprautað sig með fíkniefnum. Síðast gekk yfir faraldur meðal fíkniefnaneytenda á árunum 1989-1991. „Mikilvægt er að bjóða fíkniefnaneytendum, sem ekki hafa smitast af lifrarbólgu B, bólusetningu gegn sjúkdómnum til að koma í veg fyrir nýjan faraldur í þessum hópi," segir í Farsóttarfréttum.
Mest lesið Segir sig hafa mátt þola þöggun og ógnarstjórnun í Eyjum Innlent Hjólhýsabyggð færist í Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur Innlent „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ Innlent Bein útsending: Tekist á um þjóðaratkvæðagreiðsluna Innlent „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Innlent Sendiráðsstarfsmaður fluttur heim öryggisins vegna Innlent Ellefu taldir af eftir að efnatankur gaf sig Erlent Réðst á dóttur sína eftir að hún rak honum löðrung Innlent „Stattu vörð um fjallkonuna fríðu, láttu ekki nauðga henni“ Innlent Íslendingar segja já eða nei 29. ágúst Innlent Fleiri fréttir Þjóðaratkvæðagreiðsla í sumar og hvalveiðibátur á sjó Handsala samstarfið og gera Hilmar að bæjarstjóra Íslendingar segja já eða nei 29. ágúst Réðst á dóttur sína eftir að hún rak honum löðrung Hjalti Þór verður bæjarstjóri í Hornafirði Enginn meirihluti í Grindavík Ingimar verður bæjarstjóri í Hveragerði Segir sig hafa mátt þola þöggun og ógnarstjórnun í Eyjum Stefán Carlsson er látinn Bein útsending: Tekist á um þjóðaratkvæðagreiðsluna Gert ráð fyrir atkvæðagreiðslu um aðildarviðræður í dag Gular viðvaranir og snjókoma næsta sólarhringinn Enn tekist á um ESB í þingsal og verðbólgan hjaðnar lítið Gylfi verður bæjarstjóri á Ísafirði „Stattu vörð um fjallkonuna fríðu, láttu ekki nauðga henni“ Sendiráðsstarfsmaður fluttur heim öryggisins vegna Fækkar lögregluembættum Líta stöðuna í Varmá mjög alvarlegum augum Fagnar því að allir þingmenn fái að kynna sér ESB-gögnin Steinum kastað í bifreiðar og rúða brotin í skóla Hjólhýsabyggð færist í Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Aukaþingfundur boðaður: Miðflokksmenn fá að halda áfram í fyrramálið „Höfum þegar tekið upp tólið og heyrt í fjármálaráðherra“ Konan komin í leitirnar Arnarnesvegi ætlað að stytta bílaraðir Meirihlutanum liggur á í kvöld en ekki Miðflokknum „Viðreisnarbottar“ skýrt dæmi um erlend áhrif Lögregla kölluð til þegar slegist var um bílastæði Sjá meira