Segjast ekki tengjast heimasíðu til höfuðs Steinþóri Andri Ólafsson skrifar 18. febrúar 2008 16:40 Steinþór Skúlason
Starfsfólk sölu og markaðsdeildar Sláturfélags Suðurlands segist í yfirlýsingu ekki standa fyrir heimasíðunni slaturfelagid.com sem sett hefur verið á laggirnar til höfuðs forstóra SS, Steinþóri Skúlasyni. Vísir sagði frá síðunni fyrr í dag og ræddi við Jónas Jónsson, stjórnarformann SS vegna málsins. Hann sagði að fyrrverandi starfsmenn, sem nýlega hefðu sagt upp störfum, væru að reyna að skemma fyrir SS og koma höggi á Steinþór Skúlason. Ánægja sé með störf Steinþórs á meðal starfsmanna SS. Á slaturfelagid.com er því hins vegar haldið fram að mikillar óánægju gæti á meðal margra starfsmanna Sláturfélags Suðurlands með Steinþór forstjóra. Á heimasíðunni er meðal annars vitnað til könnunar sem VR gerði á viðhorfum starfsmanna til fyrirtækisins. Í henni kom fram að starfsandinn í SS er sá versti af 137 fyrirtækjum sem skoðuðu voru. Starfsmenn gáfu starfsandanum að meðaltali einkunnina 6 af 100 mögulegum. Í sömu könnun fékk trúverðugleiki stjórnenda SS einkunnina 7 af 100 mögulegum. Í yfirlýsingu sem Vísi barst frá starfsfólki sölu og markaðsdeildar SS í dag er engum orðum vikið að Steinþóri forstjóra né slæmum starfsanda. En öllum tengslum við heimasíðuna slaturfelagid.com er hins vegar vísað á bug.
Mest lesið Viðurkenndi efasemdir: „Ég ætla samt ekki að sýkna hana“ Erlent „Þið fáið ekki að skilgreina hvað íslenska þjóðin sagði“ Innlent Selenskí kíkti á klakann Erlent Uppgjör sýni „alvarlega“ stöðu Seltjarnarnesbæjar Innlent Telja íslenska birgja sátta og áfengisverð í fríhöfninni samkeppnishæft Innlent „Viljið þið gjöra svo vel að fyrirgefa mér af öllu hjarta“ Innlent Fjöldi menntaskólanema sá myndskeið af árásinni Innlent „Fólk er bara slegið“ Innlent Verkin segi allt aðra sögu en Kristrún Innlent Útgjöldin mikil en niðurstaðan rýr Innlent Fleiri fréttir Uppgjör sýni „alvarlega“ stöðu Seltjarnarnesbæjar „Þið fáið ekki að skilgreina hvað íslenska þjóðin sagði“ Verkin segi allt aðra sögu en Kristrún Telja íslenska birgja sátta og áfengisverð í fríhöfninni samkeppnishæft „Við erum að laga Ísland“ Útgjöldin mikil en niðurstaðan rýr Bein útsending: Stefnuræða forsætisráðherra Dæmdir fyrir að sprengja heimagerða sprengju í Múlagöngum Ríkisstjórnin í mun veikari stöðu eftir erfitt sumar Skora á yfirvöld að taka SÁÁ til skoðunar „Viljið þið gjöra svo vel að fyrirgefa mér af öllu hjarta“ „Við fyrirgefum ráðherra þessa yfirsjón“ Fleiri en einn yfirheyrður en enginn í haldi Segir afnám vaxtabóta bitna á tekjulágum heimilum Blása á gagnrýni og opna dagatalið „Fólk er bara slegið“ Þúsundir kalla eftir afsögn Þorgerðar: „Vandræðaleg tilraun“ Fjöldi menntaskólanema sá myndskeið af árásinni Leikskólakennarar slegnir yfir ummælum Ingu „Sleggja beint í höfuðið á almenningi og fyrirtækjum“ Breytingar á innanlandsflugi vegna bilunar Langflestir upplifðu sólmyrkvann Sumir framhaldsskólar líti fram hjá unglingadrykkju Kristrún flytur stefnuræðuna „Ég er hræddur við þessa menn“ Ekkert heitt vatn á Suðurnesjum í dag Stærðfræðin vefst fyrir íslenskum stúlkum Biður Loga afsökunar „á dónaskapnum“ Vanti ekki fjármagn eða hjálpargögn heldur þrýsting á Ísrael Sex gistu í fangageymslu í nótt Sjá meira