Þrjátíu særðust í óeirðum við sendiráð Bandaríkjanna í Belgrad 18. febrúar 2008 12:23
Reiknað er með því að Bandaríkin og fjölmörg ríki Evrópusambandsins viðurkenni í dag sjálfstæði Kosovo frá Serbíu. Því var lýst yfir einhliða í gær. Minnst þrjátíu særðust í óeirðum við bandaríska sendiráðið í Belgrad, höfuðborg Serbíu, í gærkvöldi. Helmingur hinna særðu er lögreglumenn. Serbar eru afara ósáttir við þá ákvörðun Kosovo-Albana að lýsa yfir sjálfstæði. Þeir líta á héraðið sem órjúfanlegan hluta Serbíu. Þrátt fyrir að Kostunica forsætisráðherra hafi hvatt landa sína til að mótmæla með friðsamlegum hætti var sendiráð Bandaríkjamanna í Belgrad grýtt í gærkvöldi. Neyðarblysum var einnig skotið að því. Lögreglan hélt mótmælendum í skefjum og hrakti þá frá sendiráðinu með táragasi, gúmmíkúlum og hvellsprengjum. Á meðan fögnuðu langflestir íbúar í Kosovo sjálfstæðinu langt fram á nótt. Hashim Tachi, forsætisráðherra, sagði í morgun að hann ætti von á viðurkenningu fjölmargra vestrænna ríkja í dag. Fastlega er búist við að Bandaríkjamenn viðurkenni sjálfstæði Kosovo í dag og síðan stórveldin í Evrópusambandinu. Grikkir, Kýpurbúar, Rúmenar og Spánverjar eru tvístígandi. Utanríkisráðherrar ESB ríkja ræða málið á fundi í Brussel í dag. Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna er klofið í málinu. Rússar óskuðu eftir fundi í gærkvöldi þar sem þeir létu í ljós þá skóðun sína að ógilda ætti sjálfstæðisyfirlýsinguna. Fulltrúi Rússa í ráðinu sagði enga ástæðu til að breyta ályktun frá 1999 um stöðu Kosovo þar sem stjórn héraðsins var sett í hendur Sameinuðu þjóðanna. Fulltrúar Bandaríkjamanna, Belga, Breta, og Frakka sendu frá sér sameiginlega yfirlýsingu þar sem þeir sögðu stöðu mála breytta frá því sem hafi verið fyrir níu árum. Kínverjar vilja fara hægt í sakirnar og hvetja til þess að Kosovo-Albanar setjist aftur að samningaborðinu með Serbum og semji við þá um framtíð Kosovo. Aftur verður fundað um málið í ráðinu síðar í dag.
Mest lesið Viðurkenndi efasemdir: „Ég ætla samt ekki að sýkna hana“ Erlent „Þið fáið ekki að skilgreina hvað íslenska þjóðin sagði“ Innlent Selenskí kíkti á klakann Erlent Uppgjör sýni „alvarlega“ stöðu Seltjarnarnesbæjar Innlent Telja íslenska birgja sátta og áfengisverð í fríhöfninni samkeppnishæft Innlent „Viljið þið gjöra svo vel að fyrirgefa mér af öllu hjarta“ Innlent Fjöldi menntaskólanema sá myndskeið af árásinni Innlent „Fólk er bara slegið“ Innlent Verkin segi allt aðra sögu en Kristrún Innlent Útgjöldin mikil en niðurstaðan rýr Innlent Fleiri fréttir Pakistanar sögðu klerkastjórninni að koma böndum á Húta Viðurkenndi efasemdir: „Ég ætla samt ekki að sýkna hana“ Selenskí kíkti á klakann Gaf Harp og tveimur öðrum ráðgjöfum milljónir í jólagjöf Leggur stefnu AfD að jöfnu við þjóðernishreinsanir Farage kemur frönskum skoðanabróður í klandur Banna breskum þingmönnum að koma til Ísraels Haraldur Noregskonungur borinn til grafar Rétta yfir rússneskum skipstjóra sem sleit sæstrengi við Finnland Leita enn að Renoir-þjófunum Bannar innflutning á kanadískum vörum Réðust á fleiri olíuflutningaskip Skutu tugum eldflauga og dróna að borgum Sádi-Arabíu Töluðu saman í klukkutíma Handtaka grunaðan spellvirkja í Þýskalandi Fordæma útförina sem „Slátrarinn“ fékk í Serbíu Grípa saman til aðgerða gegn ísraelskum landtökumönnum Allir þeir látnu í bílum sem flugvélin rann á Dýrmætum listaverkum stolið af safni Renoir Starfsmenn í verkfall eftir heimsókn trúarhóps Kim fjölgar herskipum sínum Fjárfesta í menntamálum, fjarskiptum og jarðmálmum á Grænlandi Klerkastjórnin missir tökin Rússar svara fyrir sig Ísland á Ameríkukorti Trumps Stöðnun og dýrtíð að baki stórsigri AfD Kanslarinn segir sigur AfD draga dilk á eftir sér Svíþjóðardemókrati í leyfi vegna Rússaáróðurs og hreinsanir á vinstri vængnum Útlit fyrir fyrstu fjarhægristjórnina frá endalokum nasismans Nafnabreytingaæði Trumps heldur áfram Sjá meira