Lífið

Guðni Ágústsson með nýjan sjónvarpsþátt

Guðni ávarpar þjóðina.
Guðni ávarpar þjóðina. MYND/ÍNN
Í kvöld klukkan níu hefur göngu sína þátturinn Guðni af lífi og sál á ÍNN sjónvarpsstöðinni, þar sem Guðni Ágústsson formaður Framsóknarflokksins stígur sín fyrstu skref sem þáttastjórnandi.

Guðni var staddur í Horsens í Danmörku þegar Vísir náði tali af honum, en þar verða hann og Margrét eiginkona hans heiðursgestir á þorrablóti íslendingafélagsins á morgun.

Honum leist vel á nýja starfið. „Ingvi Hrafn bauð mér tíma á stöðinni. Þetta var fallega boðið, stjórnmálamenn þurfa að koma skoðunum sínum á framfæri." segir Guðni og bætir við að ýmissa grasa kenni í þætti kvöldsins. „Ég lét hugann reika, talaði um lífið og tilveruna og fór yfir pólitík og þjóðmál" Guðni var einn í þætti kvöldsins, en segir ekki loku fyrir það skotið að hann fái til sín viðmælendur í framtíðinni. „Það er ekkert ákveðið í því. Kannski spjalla ég við fólkið sjálfur. Þetta er allt á mótunarstigi," segir Guðni.

Aðspurður hvort þátturinn sé liður í endurreisn Framsóknarflokksins segir Guðni þetta einn lið í því. „Framsóknarflokkurinn mun stækka hægum skrefum, allt hefur sinn tíma. Hann verður stór í næstu kosningum." Hann vill þó ekki meina að kosningabaráttan hefjist í kvöld. „Hún er alla daga," segir Guðni.

ÍNN er hægt að sjá á rás 20 á Digital Íslandi, og á Vísir.is





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.