Lífið

Ólafur vann aðalverðlaun í Berlín

Ólafur og Queen Raquela geta glaðst fyri frábærum árangri myndarinnar.
Ólafur og Queen Raquela geta glaðst fyri frábærum árangri myndarinnar.

Leikstjórinn Ólafur Jóhannesson vann aðalverðlaun á Teddy Awards sem er Panorama-hluti Berlínarhátíðarinnar í kvöld fyrir mynd sína Queen Raquela.

"Þetta er bara ólýsanleg gleði. Ég sá þetta ekki fyrir. Þessi mynd var erfið íog það gerir sigurinn enn sætari. Þetta eru langstærstu verðlaunin sem ég hef unnið til og sennilega mun ég aldrei vinna svona aftur," segir Ólafur í samtali við Vísi í kvöld.

"Þetta skiptir auðvitað gríðarmiklu máli fyrir dreifingu myndarinnar og ferilinn minn," sagði Ólafur áður en hann var gripinn í myndatöku.

The Amazing Truth about Queen Raquela verður frumsýnd á Íslandi í apríl.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.