Lífið

Talið að O.J. Simpson hafi lamið unnustu sína

O.J. Simpson.
O.J. Simpson.

Christie Prody, unnusta ruðningshetjunnar og Hollywood stjörnunnar O.J Simpson, var lögð inn a spítala með höfuðáverka í vikunni. Samkvæmt heimildum blaðsins National Enquirer eru áverkarnir af völdum líkamsárásar og látið er að því liggja að Simpson sé ábyrgur fyrir þeim. Hann neitar hins vegar öllum ásökunum um að hafa ráðist á unnustu sína og segir að Prody hafi verið ofurölvi og dottið. Lögreglan hefur tekið málið til rannsóknar og tekur skýringum Simpson ekki sem gefnum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.