Lífið

Á hann von á barni?

Jim Carey
Jim Carey

Chelsey Handler sem stjórnar þætti á hinni mjög svo skemmtilegu E! stöð kom með mikla yfirlýsingu í þætti sínum á þriðjudaginn.

Chelsey er góð vinkona Jenny McCarthy unnustu Jim Carrey. Handler sagði „Á meðan ég man, Jim og Jenny báðu mig að skila því að hún sé ólétt."

Talsmaður leikkonunnar hefur þó neitað þessu og sagt að Handler hafi einungis verið að spauga.

Jenny hefur rætt mjög opinskátt um einhverfu sonar síns sem hún á með fyrrum manni sínum. Meðal annars kom hún fram í Opruh og ræddi málið en hún hefur gefið út bók um reynslu sína við uppeldi sonar síns.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.