Lífið

Brangelina undirbýr brúðkaup

Angelina Jolie og Brad Pitt hafa ekki tjáð sig mikið um meinta óléttu Angelinu, en að sögn National Enquirer eiga þau sér fleiri leyndarmál. Angelina mun hafa játast Brad eftir ítrekuð bónorð hans.

Samkvæmt heimildamanni blaðsins hefur Angelina alltaf neitað bónorðum Brads þar sem hún hefur verið hæstánægð með stöðuna eins og hún var. Þegar þau komust að því að þau ættu von á tvíburum fannst henni hinsvegar að það væri tímabært að hætta að lifa í synd.

Fátt er vitað um smáatriðin, en líklegt þykir að þau láti pússa sig saman á heimili þeirra í Santa Barbara í vor.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.