Þorgrímur og Nína Dögg sigruðu í stigahlaupinu í Smáratorgi 8. febrúar 2008 22:07 Þorgrímur Þráinsson sigraði í karlaflokki.
World Class efndi til hlaupakeppni í nýja turninum á Smáratorgi síðdegis í dag þar sem hlaupið var upp 15 hæðir til styrktar Fjölsmiðjunni. Tilefnið var opnun nýrrar 700 fm heilsuræktarstöðvar á 15. hæð í turninum en stöðin mun hefja starfsemi sína á mánudaginn. „World Class og Landsbankinn hétu á keppendur að hlaupa upp hæðirnar fimmtán, sem telja 314 þrep, og lögðu til áheitafé sem rennur óskipt til Fjölsmiðjunnar. Í kvennaflokki kepptu Skrítla (Hrefna Björk Hallgrímsdóttir) og Lúsí (Katrín Þorvaldsdóttir), Nína Dögg Filippusdóttir leikkona og Ellý Ármanns, sjónvarpskona," segir í tilkynningu frá aðstandendum. Í kvennaflokki sigraði leikkonan Nína Dögg en hún hljóp á tímanum 1:50,72. „Næst á eftir henni varð Skrítla en hún hljóp á tímanum 2:18,97." Í karlaflokki kepptu Jói Fel bakarameistari, Þorgrímur Þráinsson rithöfundur, Finnbogi Kristinsson, deildarstjóri í Fjölsmiðjunni, og Guðmundur Hrafnkelsson, fyrrum landsliðsmaður í handbolta og starfsmaður Fjölsmiðjunnar. „Með sigur af hólmi fór Þorgrímur Þráinsson en hann hljóp á tímanum 1:11,53. Fast á hæla hans kom Jói Fel en hann hljóp á tímanum 1:27." Tímaverðir voru einkaþjálfararnir Ívar Guðmundsson og Arnar Grant. „Með sigrinum tókst Nínu og Þorgrími að tryggja sér árskort í heilsuræktarstöð World Class en þar með er ekki öll sagan sögð því sigurvegararnir geta misst kortin í hendurnar á öðrum sem bæta tíma þeirra, þar sem framhald verður á hlaupakeppninni." „Fyrsta laugardag í hverjum mánuði gefst öllum sem áhuga hafa á að hlaupa upp hæðirnar fimmtán að bæta tímann og vinna þar með til sín árskortin. Sá sem þannig missir kortið úr höndunum hefur þó alltaf tækifæri til að vinna það á nýjan leik með því að bæta nýjasta tímann. Skráning í laugardagshlaupin fer fram í World Class í síma 517 0609." Fjölsmiðjan er vinnustaður fyrir ungt fólk á aldrinum 16-24 ára sem hefur hætt námi og ekki náð að fóta sig á vinnumarkaði. Þar gefst því tækifæri til að þjálfa sig fyrir almennan vinnumarkað eða áframhaldandi nám.Þorbjörn Jensson, forstöðumaður Fjölsmiðjunnar, segir Fjölsmiðjuna eiga sér danska fyrirmynd, Produktionsskolerne, sem hafi gefist vel. „Í Fjölsmiðjunni er reynt að finna styrkleika hvers og eins og virkja hann. Við vinnum með einstaklinginn eins og hann er og finnum leiðir til að efla sjálfstraust hans," segir Þorbjörn og bætir því við að styrkurinn komi að góðum notum í ýmiss konar fræðslustarfi innan Fjölsmiðjunnar.
Mest lesið Einhleypir og eftirsóttir sumarstrákar Lífið „Ég er ekki stoltur af því hvernig ég lét“ Lífið Jenner og Elordi verið að hittast síðustu mánuði Lífið Forrest Gump rokksins allur Tónlist Rifjaði upp martröðina á Arnarhóli Lífið Furðulegar Eddutilnefningar: Nína Dögg, Ólafur Darri og Edda sniðgengin Menning Keppast um titilinn Ungfrú Ísland í kvöld Lífið Oddvitaáskorunin: Þegar byrjuð að skrifa ævisöguna Lífið „Hugur manns í þunglyndi er eineltishrotti“ Menning Hljóðblöndunin hörmung en Hebbi gamli bjargaði kvöldinu Gagnrýni Fleiri fréttir Áttu að föndra dýr aftan á bolinn Keppast um titilinn Ungfrú Ísland í kvöld Jenner og Elordi verið að hittast síðustu mánuði Oddvitaáskorunin: Þegar byrjuð að skrifa ævisöguna Einhleypir og eftirsóttir sumarstrákar Rifjaði upp martröðina á Arnarhóli Fagnaði sigri með bumbukossi „Ég er ekki stoltur af því hvernig ég lét“ Laufey með lag í nýja Pradadjöflinum Særir burt drauga og dáleiðir sársauka í burtu Sigurður Ingi brenndi jakkafötin á tímamótum Hafi alltaf trúað því að gæskan myndi sigra Hvítvín, sushi og blautir kossar í Smárabíói Oddvitaáskorunin: Öfundar alla sem kunna pólsku Köttur í Kópavogi vekur athygli um allan heim Hleypur um LA og ætlar að vinna Bakgarðinn „Það eru margar drottningar í Flokki fólksins“ Daði Freyr og Gugusar koma fram á Hálendishátíð Ari Edwald selur í Garðabænum „Justin Bieber var með sturtuhausinn minn“ Sleikbás, smokkar og sjóðheitar skvísur „Eins og að vera með tifandi tímasprengju innra með sér“ Stjörnulífið: „Var að berjast við að gráta ekki“ Áttu aldrei von á að verða foreldrar innan árs Ómögulegt að afneita sorginni til lengri tíma Krakkatía vikunnar: LEGO, lakkrís og kubbalaga saur Alex fetaði í fótspor Bó á dánardegi hans Opnar sig um kvíða og þunglyndi Láta lægð í kvikmyndaiðnaði ekki stöðva sig og opna nýtt stúdíó Pétur Jóhann bregður á leik vegna nýrrar bókar Jóns Ársæls Sjá meira