Lífið

Jeremy Clarkson kemur ekki – veðurtepptur í London

Breki Logason skrifar
James May, Jeremy Clarkson og Richard Hammond umsjónarmenn Top Gear.
James May, Jeremy Clarkson og Richard Hammond umsjónarmenn Top Gear.

Jeremy Clarkson einn umsjónarmanna þáttarins Top Gear, ætlaði að koma til landsins í dag til þess að vera viðstaddur sérstaka forsýningu í Laugarásbíó í kvöld. Hann er hinsvegar veðurtepptur í London og kemur ekki til landsins.

Clarkson var mættur út á Heathrow þar sem hann beið eftir flugi til Íslands en einhver seinkun var á vélinni út. Eftir samtal við forsvarsmenn Arctic Trucks var tekin ákvörðun um að blása ferðina af, þar sem hann hefði ekki náð hingað til lands í tæka tíð.

Hann mun því ekki verða viðstaddur sérstaka forsýningu á þætti sem átti að sýna um ferð þeirra Top Gear-manna á Norðurpólinn. En það var Arctic Trucks sem sá um að breyta bílunum sem fóru á pólinn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.