35 milljónum veitt úr styrktarsjóði Baugs Group 6. febrúar 2008 20:19 Jóhannes Jónsson formaður stjórnar Styrktarsjóðsins og Ingibjörg Pálmadóttir stjórnarmaður ásamt Önnu Leoniak, en hún og Fiann Paul hlutu 2.000.000 króna til að klæða húsin sem brunnu við Lækjargötu í fyrra með myndum af íslenskum börnum á aldrinum 3 til 7 ára. „
Ég vil læra íslensku" námsefni í íslensku sem annað tungumál, er eitt þeirra verkefna sem hlaut styrk í dag, við úthlutun úr Styrktarsjóði Baugs Group. Fjörutíu og sex einstaklingar og félög hlutu styrki úr sjóðnum, samtals um 35 og hálf milljón króna. Í tilkynningu frá Baugi Group segir að tæplega 350 umsóknir hafi borist að þessu sinni en þetta er í fimmta sinn sem úthlutað er úr sjóðnum. „ Börnum af erlendum uppruna í grunnskólum landsins hefur fjölgað verulega á síðustu árum og eru nú um 4 prósent eða nálægt 1700 nemendur," segir í tilkynningunni. „ Rannsóknir hafa sýnt, að verulegur munur er á orðaforða barna með annað móðurmál en íslensku og hinna. Námsgagnavefurinn Katla hefur unnið námsefni sem spannar 1000 algengustu orðin í íslensku, en nú er fyrirhugað að búa til námsefni með 5000 algengustu orðin. Styrktarsjóður Baugs Group styrkir verkefnið með úthlutuninni í dag." „Ad Astra er fyrirtæki sem veitir bráðgerum börnum í efri bekkjum grunnskóla, í 6. til 10. bekk, verkefni við hæfi. Þetta eru börn sem sýna óvenjulega snemma hæfileika á einu sviði eða fleirum miðað við aldur. Þau eru oft á undan í skóla, finnst námsefnið of létt og þurfa aldrei að læra heima. Ad Astra býður þessum börnum fjölbreytt námskeið í fjölmörgum námsfögum. Baugur Group styrkir verkefnið," segir einnig. Þá hlaut verkefnið "Í Matador með Lúdóreglum" - samskipti og umhverfi stjúpfjölskyldna, styrk. „Rannsóknir sýna að málefni stjúpfjölskyldunnar eru oft svo viðkvæm, að fjölskyldum getur reynst erfitt að ræða þau. Skortur á viðurkenningu og þekkingu eykur líkurnar á að fjölskyldur í vanda leita sér ekki aðstoðar. Mörg börn reyna því skilnað oftar en einu sinni í uppvexti sínum." Þá styrkir Styrktarsjóðurinn myndarlega við tvö verkefni á Listahátíð í vor, annars vegar tónlistaratriði, hins vegar ljósmyndaverkefnið Dialogue. Hljómsveitin Super Mama Djombo kemur frá Gíneu-Bissá á vesturströnd Afríku. Hljómsveitin vinnur um þessar mundir að gerð geisladisks og mun leika á hljómleikum í Reykjavík í vor. Dialogue er samstarfsverkefni Önnu Leoniak og Fiann Paul, sem bæði eru arkitektar og ljósmyndarar. Þau ætla að fara um landið, taka ljósmyndir af íslenskum börnum á aldrinum 3 til 7 ára og klæða húsin við Lækjargötu, sem brunnu á liðnu ári, með myndunum. „Verkið á að endurspegla framtíð landsins. Hugmyndin er óvenjuleg og skemmtileg, líkleg til að vekja athygli Reykvíkinga og gesta borgarinnar og verða frumlegt framlag til menningar í borginni." Hér fyrir neðan má sjá lista yfir alla styrkþega í ár.
Mest lesið Einhleypir og eftirsóttir sumarstrákar Lífið Útför Björgvins Halldórssonar í beinni á Vísi og Sýn Tónlist „Ég er ekki stoltur af því hvernig ég lét“ Lífið Forrest Gump rokksins allur Tónlist Orkugeirinn kom saman á ársfundi Orkuveitunnar Lífið Jenner og Elordi verið að hittast síðustu mánuði Lífið Keppast um titilinn Ungfrú Ísland í kvöld Lífið Furðulegar Eddutilnefningar: Nína Dögg, Ólafur Darri og Edda sniðgengin Menning Rifjaði upp martröðina á Arnarhóli Lífið Oddvitaáskorunin: Þegar byrjuð að skrifa ævisöguna Lífið Fleiri fréttir Það heitasta í veislutertum Orkugeirinn kom saman á ársfundi Orkuveitunnar Áttu að föndra dýr aftan á bolinn Keppast um titilinn Ungfrú Ísland í kvöld Jenner og Elordi verið að hittast síðustu mánuði Oddvitaáskorunin: Þegar byrjuð að skrifa ævisöguna Einhleypir og eftirsóttir sumarstrákar Rifjaði upp martröðina á Arnarhóli Fagnaði sigri með bumbukossi „Ég er ekki stoltur af því hvernig ég lét“ Laufey með lag í nýja Pradadjöflinum Særir burt drauga og dáleiðir sársauka í burtu Sigurður Ingi brenndi jakkafötin á tímamótum Hafi alltaf trúað því að gæskan myndi sigra Hvítvín, sushi og blautir kossar í Smárabíói Oddvitaáskorunin: Öfundar alla sem kunna pólsku Köttur í Kópavogi vekur athygli um allan heim Hleypur um LA og ætlar að vinna Bakgarðinn „Það eru margar drottningar í Flokki fólksins“ Daði Freyr og Gugusar koma fram á Hálendishátíð Ari Edwald selur í Garðabænum „Justin Bieber var með sturtuhausinn minn“ Sleikbás, smokkar og sjóðheitar skvísur „Eins og að vera með tifandi tímasprengju innra með sér“ Stjörnulífið: „Var að berjast við að gráta ekki“ Áttu aldrei von á að verða foreldrar innan árs Ómögulegt að afneita sorginni til lengri tíma Krakkatía vikunnar: LEGO, lakkrís og kubbalaga saur Alex fetaði í fótspor Bó á dánardegi hans Opnar sig um kvíða og þunglyndi Sjá meira