Lífið

Gray's Anatomy stjarna með húðkrabba

Leikarinn Eric Danes, sem leikur hinn kynþokkafulla Mark Sloan í Gray's Anatomy, segir í nýjasta tölublaði OK Magazine frá sínum eigin læknaraunum.

Hann segist hafa áttað sig á því að ekki var allt með felldu þegar hann leit í spegil og sá að hann var með hrúður á vörunum. Hann leitaði til húðsjúkdómalæknis sem greindi honum frá því að þetta væri illkynja húðæxli.

Æxlið var umsvifalaust fjarlægt og segist leikarinn nú ekki fara út úr húsi án þess að bera á sig sólarvörn.

En fátt er svo með öllu illt. Krem sem borið var á varirnar eftir að æxlið hafði verið fjarlægt fór illa í leikarann. Hann átti afar erfitt með að borða í nokkrar vikur og léttist því töluvert.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.