Lífið

Pabbi J-Lo staðfestir að hún eigi von á tvíburum

Jennifer Lopez á von á tvíburum. Pabbi hennar staðfesti þetta í samtali við Escándalo TV sjónvarpsstöðina á dögunum. Hann sagði dóttur sína vera í skýjunum, enda hefði hana lengi langað í börn.

Slúðurpressan vestanhafs sló því föstu á fyrstu mánuðum meðgöngunnar að J-Lo gengi með tvíbura. Enda keypti hún tvö eintök af öllu frá klæðnaði og dóti til vagna og barnarúma. Þetta er þó í fyrsta sinn sem einhver nátengdur henni staðfestir orðróminn.

Pabbinn er þó ekki á því að meint tæknifrjóvgun hafi eitthvað með barnafjöldann að gera. Líklega sé þetta ættgengt, en tvíburafæðingar séu algengar í fjölskyldunni.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.