Dregur saman með Clinton og Obama 3. febrúar 2008 10:53 Vel fór á með þeim Clinton og Obama í lok sjónvarpskappræðna í Los Angeles í síðustu viku. MYND/AFP
Barack Obama og Hillary Clinton njóta svipaðs stuðnings meðal demokrata á landsvísu í Bandaríkjunum, samkvæmt skoðanakönnun sem Washington Post birtir í dag. Clinton er samkvæmt könnuninni með 47 prósent stuðning en Obama 43 prósent. Á þriðjudag verða prófkjör í næstum helmingi fylkja Bandaríkjanna. Könnun sem gerð var í Kaliforníu sýnir að þar hefur Obama aukið fylgi sitt verulega og er nú lítill munur á þeim. Clinton var áður með mikið forskot í Kaliforníu. Kannanir sýna að óvenju margir hafa enn ekki gert upp hug sinn þannig að allt getur gerst á næstu tveimur dögum. Forsetaframbjóðendurnir svöruðu í gær spurningum ungra áhorfenda MTV tónlistarstöðvarinnar. Barack Obama sagðist mundu sem forseti vera í einstakri aðstöðu til að ræða við leiðtoga múslimalanda, því að þó að hann væri sjálfur kristinn þá hefði hann sem barn alist upp í múslimalandi. Hann átti heima í Indónesíu. Áberandi var að þegar unga fólkið ræddi við Clinton og aðra frambjóðendur þá notaði það tækifærið meðal annars til að spyrja um Obama. Obama hefur sótt verulega í sig veðrið í Kaliforníu, þar sem Clinton var með mikið forskot. Hún er nú með 36 prósent stuðning en hann 34 prósent. Einn af hverjum fimm demokrötum í Kaliforníu hefur ekki ákveðið sig en það hlýtur að vera Clinton mikið áhyggjuefni að þeir sem hafa verið að gera upp hug sinn undanfarið hafa í miklum mæli valið Obama. Þá hefur John McCain meðal Repúblikana einnig sótt í sig veðrið undanfarið. Kannanir í Kaliforníu sýna að ef valið stæði á milli Clinton og McCain, myndu tveimur prósentum fleiri velja Clinton, en ef valið stæði milli Obama og McCain, myndu sjö prósentum fleiri velja Obama. Með öðrum orðum, þá finnst æ fleiri kjósendum Obama vera sigurstranglegri gegn repúblikönum heldur en Clinton.
Mest lesið Geta skotið drónum langt inn fyrir landsvæði NATO-ríkja Erlent Tek mark á því að þetta sé fallegasta hús Íslands Innlent Færsla vínbúðarinnar „galin“ en skemmdi ekki miðbæinn Innlent Allt gert til að stöðva birtinguna Innlent Gott að Trump hafi opnað á umræðuna Innlent Ekkert út á Dorriti að setja en frásögn eigenda ekki á rökum reist Innlent Hættu við ADHD-greiningu vegna vímuefnaneyslu barnsins Innlent Skilti í setrinu á ensku: „Hjartanlega sammála því að við eigum ekki að hafa þetta svona“ Innlent Með stöðu sakbornings vegna banaslyss á Miklubraut Innlent Evrópuvaktin 2026: Þjóðin gengur að kjörborðinu Innlent Fleiri fréttir Enginn árangur af fundi Kushner og Netanyahu Geta skotið drónum langt inn fyrir landsvæði NATO-ríkja Haraldur konungur lagður inn á spítala Átti í samskiptum við eftirhermu starfsmannastjóra Hvíta hússins Yfirheyra bandamenn sína í NATO Ellefu ára fangelsi fyrir að mótmæla stríði Pútíns „Ef Óman þvælist fyrir, sprengjum við þá í tætlur" Réttarhöldin gegn Murdaugh færð, fari þau yfir höfuð fram Senda hermenn gegn glæpasamtökum í „bakgarðinum“ Trump tekur sér stöðu með Norður-Kóreu gegn Suður-Kóreu Hæsta stytta Evrópu af Maríu mey afhjúpuð Úkraína gæti átt heimasmíðaðar skotflaugar innan nokkurra mánaða Kushner mættur til Ísrael Tveir látnir í gróðureldum í Grikklandi Herkvaðning í Rússlandi vofir yfir Úkraínumönnum Eldflaugum og drónum rignir yfir Kænugarð og Moskvu Tólf látnir eftir að ferðamannarúta hafnaði í skurði Fimm særðust í skotárás í bandarískum háskóla Fagnað á götum Kabúl Fannst hann ekki geta haldið áfram Bætist í tölu látinna Sextán ára drengur stunginn til bana í busavígslu Hótar að gera Hormússundið að bandarísku yfirráðasvæði Tugir látnir eftir stóran jarðskjálfta Prófessor sakaður um ritstuld fannst látinn Önnur lestin af sporinu á innan við sólarhring Mangione játar sök: „Ég skaut herra Thompson og hann lést“ Biður hæstarétt um grænt ljós á veislusalinn „Óumflýjanlegt“ að sjúkdómar blossi aftur upp vegna aðgerða Bandaríkjanna Í basli með að finna nýjan sendiherra í Washington DC Sjá meira