Lífið

Jennifer Lopez lætur sérhanna spítalaslopp

J-Lo lætur ekki sjá sig í hverju sem er. Hún hefur eytt megninu af meðgöngunni í sérhönnuðum litríkum spjörum Robertos Cavalli, sem eins og frægt er orðið var fyrstur til að glopra því út úr sér að hún ætti von barni.

Það þarf því ekki að koma á óvart að hún ætli ekki að spóka sig í einhverjum lummó spítalaslopp á fæðingardeildinni.

MSNBC hefur það eftir vini söngkonunnar að hún sé búin að panta tíma í keisaraskurð og pakka fyrir dvölina. Með í för verða fjórir pastellitaðir spítalasloppar og sloppur í stíl hannaðir af dearjonnies.com.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.