Villi Þ. þyrfti að fara á Dale Carnegie námskeið sev skrifar 31. janúar 2008 11:43 Hermundur vill ekki meina að borgarstjórnarflokkurinn standi þétt að baki Villa MYND/Vilhelm Gunnarsson
Nýr meirihluti mun tæpast lifa árið að mati Hermundar Rósinkranz talnaspekings. Vilhjálmur og Ólafur séu gjörólíkir persónuleikar, sem sigli um á sjóræningjafleyi með rotnin epli innanborðs. Hermundur segir að tala Ólafs, ásinn, benda til persónuleika sem er frumherji og leiðtogi. Þegar hann ákveður eitthvað stendur hann við það. Hann er ákveðinn og ósveigjanlegur, og fær sínu fram. Vilhjálmur er hinsvegar sjöa. Maður með töluna sjö er góður stjórnandi, en kann illa við sig í sviðsljósi og hentar því betur að stjórna bak við tjöldin. „Villi þyrfti að fara á Dale Carnegie námskeið og peppa sig upp í ræðumennsku. Það vantar þetta traust í hann," segir Hermundur. Þá þoli sjöan illa gagnrýni, og verði óörugg í sviðsljósinu. Hermundur tekur þó skýrt fram að hann sé þó ekki að tala illa um Vilhjálm. Hann segir að betur hefði farið á því að Vilhjálmur hefði verið borgarstjóri á undan Ólafi. „Ólafur er þreyttur og þarf hvíld, og það hefur ekki með andlega heilsu hans að gera," segir Hermundur. Álagið vegna fjölmiðlafársins í kringum borgarstjórnarskiptin sé einfaldlega mjög þreytandi. „Það er ekki að sjá að þeir geti náð saman" segir Hermundur. Hann segir að mögulega lifi samstarfið árið, þó hann telji ekki miklar líkur á því. Myndin sem birtist honum af borgarstjórnarsamstarfinu er ekki fögur. „Þetta er eins og sjóræningjaskip. Það er stolið og plottað," segir Hermundur og bætir við að það séu rotin epli innanborðs í samstarfinu. „Þetta er ekki búið" segir Hermundur. Nú sé plottað á varamannabekknum. Hann spáir því að minnihlutinn í borgarstjórn komi ekki til með að hleypa Vilhjálmi aftur í borgarstjórastólinn. Hann eigi sér þó fleiri óvini en minnihlutann. „Það er eitt og hálft rotið epli í borgarstjórnarflokknum," segir Hermundur. Hann segist ekki vilja nefna hverja hann sér þar, en segir þó að það séu maður og kona. „Hann er rétt að byrja þessi titringur," segir Hermundur. Hermundur spáði því í viðtali á útvarpi Sögu rétt fyrir áramót að meirihluti tjarnarkvartettsins myndi springa, og hefur því nokkra reynslu af því að spá fyrir um meirihlutaprengingar.
Mest lesið Sneri vörn í sókn í vinaleysinu Lífið Diljá Mist skikkuð í smá hvíld Lífið Cindy Crawford óhuggandi eftir andlátið Lífið Systkinin kítast: „Mættir alveg mæta meira upp í bústað og vinna“ Lífið „Mjög óraunveruleg og full af ást“ Lífið Hvað veistu um… Djúpavog? Lífið Skvísur í svakalegu stuði á Svikasögum Menning Arnaldur græddi 113 milljónir og Yrsa tuttugu Lífið Ein heitasta leikkona landsins á lausu Lífið Gjörningur til heiðurs pabba sem féll fyrir eigin hendi Lífið Fleiri fréttir Arnaldur græddi 113 milljónir og Yrsa tuttugu Í kossaflensi á listasýningu Sneri vörn í sókn í vinaleysinu Misstu sig þegar sigurinn var í höfn Systkinin kítast: „Mættir alveg mæta meira upp í bústað og vinna“ Diljá Mist skikkuð í smá hvíld Cindy Crawford óhuggandi eftir andlátið „Mjög óraunveruleg og full af ást“ Hvað veistu um… Djúpavog? Gjörningur til heiðurs pabba sem féll fyrir eigin hendi Ein heitasta leikkona landsins á lausu Einstakt einbýli Sigurðar og Láru Stjörnum prýdd fyrsta frumsýning vetrarins Heyrir aftur hljóð sem höfðu verið horfin í mörg ár Sonur Cindy Crawford er látinn Stjörnulífið: „Fer þér ekki vel, þessi drjóli“ Sjóðurinn tómur Var send í megrunarbúðir 11 ára gömul Krakkatía vikunnar: Nýjasti kisinn, rjúpa og vopn „Okkur langar bara til þess að gera þetta allt saman aftur“ Hætta að prenta Walliams eftir ásakanir um kynferðislegt áreiti Örvar og María Elísabet nýtt listapar Segir af sér eftir að hafa beitt mótmælendur ofbeldi „Maður getur varla beðið um meira“ Bakaríið í beinni útsendingu „Fóturinn á mér er ekki bólginn af því að ég missti barnið mitt“ Fréttatía vikunnar: Danir, pósthólf og Louis Vuitton Macklemore svarað Staðgöngumóðir var það Yfir sjöhundruð manns keypt af Guðna í forsölu Sjá meira