Milljónir Kínverja sitja fastir vegna óveðurs 29. janúar 2008 08:23
Samgöngur í suðurhluta Kína eru lamaðar vegna mikils vetrarveðurs sem geysað hefur þar að undanförnu. Milljónir Kínverja eru strandaglópar af þessum sökum á járnbrautarstöðvum og flugvöllum en framundan er einhver mesta ferðahelgi ársins í landinu. Kínverjar halda nýár sitt hátíðlegt uppúr mánaðarmótum og því eru margir þeirra á faraldsfæti þessa daganna. Gífurleg snjókoma, blindbylir og frosthörkur hafa hinsvegar sett strik í reikinginn í suðurhluta landsins. Á járnbrautarstöðinni í Sjanghæ sitja nú um 200.000 manns fastir og bíða þess að veðrinu sloti. Reiknað er með að þessi fjöldi geti stigið í 600.000 manns áður en tekst að koma járnbrautarsamgöngunum á að nýju. Um er að ræða versta veður sem skollið hefur á þessu svæði undanfarin 50 ár. Og veðurfræðingar reikna með að veðrið færist í aukana á næstu dögum. Alls er talið að tæplega 70 milljónir Kínverja hafi orðið fyrir barðinu á vetrarveðrinu og ófærðinni sem því hefur fylgt en nær allir flugvellir á þessum slóðum eru lokaðir sem og aðrar umferðarstöðvar. Ástandið er hvað alvarlegast í héraðinu Guangdong sem liggur upp að Hong Kong. Þar bíða hundruðir þúsunda farandverkamanna eftir tækifæri til að komast til síns heima áður en hátíðahöldin hefjast.
Mest lesið „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Innlent Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Erlent Trump hjólar í páfa Erlent Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Innlent Flugstjórinn þögull sem gröfin Innlent Fangaverðir segja fangelsiskerfið „algjörlega komið að þolmörkum“ Innlent Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Erlent Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Erlent Lágflugið vekur athygli erlendis Innlent Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Erlent Fleiri fréttir Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Trump hjólar í páfa Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Orbán játar sig sigraðan Orbán skákað í síðustu skoðanakönnuninni Faðir Mary drottningar látinn Mette Frederiksen leitar yfir miðju Trump setur blátt bann við siglingum um Hormússund Allra augu verða á Ungverjalandi í kvöld Íri réðst á bandaríska herflugvél með öxi Friðarviðræður runnu út í sandinn Komið að ögurstundu Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Trump „alveg sama“ um hvort samkomulag náist við Íran Augliti til auglitis í fyrsta sinn frá íslömsku byltingunni „Arc de Trump“ rísi í Washington Fullkomin lending eftir sögulega ferð Sakfelldur vegna sjálfsvígs eiginkonunnar Rasmussen setur þrýsting á Frederiksen Orbán gæti enn sigrað þrátt fyrir dökkt útlit í könnunum Hótaði Rutte hefndaraðgerðum í reiðilestri í Hvíta húsinu Enn barist í Líbanon og Trump ósáttur við Írani Hriktir í stoðum MAGA: Trump ævareiður vegna gagnrýni stuðningsmanna sinna Á fjórða hundrað féllu í árásinni á miðborg Beirút Landsstjórn Færeyja hvetur til olíuvinnslu Þvertekur fyrir nokkur tengsl Starfsemi friðarverðlaunahafa dæmd ólögleg í Rússlandi Bretar hvattir til að taka íslenskan þorsk fram yfir breskan Sjá meira