Spaugstofan var ekki að gera grín að veikindum Ólafs Sigríður Elva Vilhjálmsdóttir skrifar 28. janúar 2008 16:34 „
Við vorum bara að fjalla um atburði daganna á undan eins og við erum búnir að gera í 20 ár." segir Karl Ágúst Úlfsson Spaugstofumaður sem kannast ekki við það að vegið hafi verið að Ólafi F. Magnússyni borgarstjóra í þætti stofunnar á laugardag. Mikið hefur verið rætt og skrifað um að ómaklega hafi verið vegið að Ólafi með umfjöllun um veikindi hans í þættinum. „Það sem við vorum að gera var hreinlega að paródera þennan ofboðslega fókus sem fjölmiðlar settu á heilsufar Ólafs eftir að nýr meirihluti tók við", segir Karl. Hann segir að Spaugstofuliðar hafi því ekki verið að gera grín að veikindunum sem slíkum, þeim hafi einfaldlega þótt það skondið að öll þessi athygli skyldi fara á það hvernig nýr borgarstjóri hefði það. Karl undrast viðbrögðin við þættinum: „Það er svolítið gaman að því þegar þessi stórtíðindi eru nýskeð að öllu þessu púðri skuli eytt á Spaugstofuna, það segir kannski eitthvað um okkur sem þjóð". Hann tekur gagnrýninni með jafnaðargeði, og segir að sjálfsögðu ágætt að hlutir séu gagnrýndir. Spaugstofan hafi fengið bæði jákvæð og neikvæð viðbrögð við því sem þeir hafa gert í gegnum tíðina. „Við þurfum að búa við það rétt eins og fólk í pólitík þarf að búa við að fjallað sé um það á mismunandi hátt í fjölmiðlum. Spaugstofan mun að sögn Karls ekki leggja upp laupana yfir þessu, „Það væri hallærislegt að segja af okkur núna" segir Karl, og bæti við að Spaugstofan muni halda áfram að gera grín að pólitíkusum jafnt og öðrum.
Mest lesið Einhleypir og eftirsóttir sumarstrákar Lífið „Ég er ekki stoltur af því hvernig ég lét“ Lífið Útför Björgvins Halldórssonar í beinni á Vísi og Sýn Tónlist Forrest Gump rokksins allur Tónlist Jenner og Elordi verið að hittast síðustu mánuði Lífið Orkugeirinn kom saman á ársfundi Orkuveitunnar Lífið Keppast um titilinn Ungfrú Ísland í kvöld Lífið Furðulegar Eddutilnefningar: Nína Dögg, Ólafur Darri og Edda sniðgengin Menning Rifjaði upp martröðina á Arnarhóli Lífið Oddvitaáskorunin: Þegar byrjuð að skrifa ævisöguna Lífið Fleiri fréttir Það heitasta í veislutertum Orkugeirinn kom saman á ársfundi Orkuveitunnar Áttu að föndra dýr aftan á bolinn Keppast um titilinn Ungfrú Ísland í kvöld Jenner og Elordi verið að hittast síðustu mánuði Oddvitaáskorunin: Þegar byrjuð að skrifa ævisöguna Einhleypir og eftirsóttir sumarstrákar Rifjaði upp martröðina á Arnarhóli Fagnaði sigri með bumbukossi „Ég er ekki stoltur af því hvernig ég lét“ Laufey með lag í nýja Pradadjöflinum Særir burt drauga og dáleiðir sársauka í burtu Sigurður Ingi brenndi jakkafötin á tímamótum Hafi alltaf trúað því að gæskan myndi sigra Hvítvín, sushi og blautir kossar í Smárabíói Oddvitaáskorunin: Öfundar alla sem kunna pólsku Köttur í Kópavogi vekur athygli um allan heim Hleypur um LA og ætlar að vinna Bakgarðinn „Það eru margar drottningar í Flokki fólksins“ Daði Freyr og Gugusar koma fram á Hálendishátíð Ari Edwald selur í Garðabænum „Justin Bieber var með sturtuhausinn minn“ Sleikbás, smokkar og sjóðheitar skvísur „Eins og að vera með tifandi tímasprengju innra með sér“ Stjörnulífið: „Var að berjast við að gráta ekki“ Áttu aldrei von á að verða foreldrar innan árs Ómögulegt að afneita sorginni til lengri tíma Krakkatía vikunnar: LEGO, lakkrís og kubbalaga saur Alex fetaði í fótspor Bó á dánardegi hans Opnar sig um kvíða og þunglyndi Sjá meira