Lífið

Ashley Cole skaut framhjá eiginkonunni

Ashley Cole og eiginkona hans Cheryl Tweedy úr Girls Aloud.
Ashley Cole og eiginkona hans Cheryl Tweedy úr Girls Aloud.

Bakvörðurinn knái Ashley Cole hjá Chelsea hélt framhjá Cheryl eiginkonu sinni eftir villt kvöld á djamminu. Bresk ljóska segist hafa eytt nótt með kappanum.

Það er hin ljóshærða Aimee Walton sem segist hafa eytt nótt með kappanum í íbúð vinar hans. „Ekki segja neinum frá þessu, annars lendi ég í veseni," sagði Ashley eftir bólfarirnar með blondínunni.

Hin tuttugu og tveggja ára gamla Aimee sér þó eftir þessum gjörðum sínum. „Ég var búin að drekka alltof mikið og lét eftir það sem hann vildi. Ég er með samviskubit yfir þessu vegna Cheryl, en hún á skilið að vita hvernig maður hann er," lét stúlkan hafa eftir sér í breskum fjölmiðlum í dag.

Eiginkona Cheryl er ein af stúlkunum í stúlknabandinu vinsæla Girls Aloud. „Cheryl á eftir að fá áfall, hún elskar hann svo mikið. Þau verða að ræða sín mál alvarlega eftir þetta," sagði vinur söngkonunnar.

Aimee sem á eitt barn segist hafa farið með Ashely í íbúðina eftir að hafa hitt hann á klúbbi í London, þar sem hann hafði verið að drekka vodka kokkteila.

 

Cole tæklar hér arftaka sinn hjá Arsenal, Sagna.

Hún segir knattspyrnumanninn hafa verið frekar slappan í bílnum á leiðinni í íbúðina og einnig eftir að þau höfðu sofið saman. „Stuttu eftir að við byrjuðum þá rúllaði hann sér yfir að rúmstokknum og kastaði upp yfir allt parketið," segir Aimee.

En bakvörðurinn var ekki af baki dottinn þarna heldur vippaði sér inn á klósett og burstaði í sér tennurnar. „Þá byrjuðum við aftur en síðan komu félagar hans inn í herbergið og trufluðu okkur."

Eftir að félagarni fóru fór þetta fyrst að ganga og prófuðu þau nokkrar stellingar að sögn Aimee. „Síðan kláraði hann og leið útaf með bros á vör."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.