Tölvan dó á versta degi ársins 25. janúar 2008 15:23 Sirrý var fegin að fá tölvuna sína aftur. MYND/Gassi
Breski vísindamaðurinn Cliff Arnall reiknaði það út að mánudagurinn 21. janúar yrði versti dagur ársins 2008. Sjónvarpskonan og rithöfundurinn Sirrý getur skrifað undir það. „Hlutabréf féllu, borgarstjórnin féll og tölvan mín hrundi" segir Sirrý, en þar sem hún sat við skriftir á nýrri bók sinni um Örlagadaga byrjaði tölvan að gefa frá sér torkennileg hljóð, urg og surg. Hún náði að slökkva á tölvunni áður en óhljóðin ágerðust, en þegar kom að því að kveikja á henni aftur vönduðust málin. Skjárinn var svartur, og tölvan bærði ekki á sér. Sirrý fór með vélina í viðgerð, þar sem hún var úrskurðuð látin. Í tölvunni var fyrsta handritið að bókinni hennar, sem hún var að fara að skila inn til útgefanda, auk handrita að sjónvarpsþáttunum og persónulegra mynda og annarra gagna. Sirrý gat því ekki gefist upp, og fann að lokum mann sem gat gert við tölvuna. Bókin mun því koma út á fyrirætluðum tíma, í haust. Hún segir atvikið hafi verið lærdómsríkt. „Þetta er eitthvað sem maður heldur að komi bara fyrir hina", segir Sirrý. Hún ráðleggur fólki eindregið að taka afrit af gögnunum sínum. Margir séu í hennar sporum, og hafi verið lengi á leiðinni að gera þetta. „Þetta er ekki bara vinnan, heldur myndirnar og minningarnar", segir Sirrý, og bætir við að hún hafi farið rakleiðis út í búð og keypt sér minniskubb, og muni héðan í frá taka afrit af öllu.
Mest lesið Gáfu yfir 50 vinninga í beinni útsendingu Lífið 50+: Fólk upplifir sig yngra en áður – og þróunin heldur áfram Áskorun Margaret Kerry er látin Bíó og sjónvarp Vildi hjálpa öðrum þótt hún vissi að tíminn væri naumur Lífið Oliver Tree látinn 32 ára að aldri Lífið Óboðni sturtugesturinn sextán sentímetra kónguló Lífið Krakkatía vikunnar: HM, risaeðlur og naglaklippur Lífið Ekkert líf að verða hrædd á hverju vori Lífið Ósk um öfgafulla ást og bæling í bakherbergjunum Gagnrýni Fréttatía vikunnar: NASA, Messi og Mette-Marit Lífið Fleiri fréttir Oliver Tree látinn 32 ára að aldri Gefa yfir 50 vinninga í beinni útsendingu Krakkatía vikunnar: HM, risaeðlur og naglaklippur Vildi hjálpa öðrum þótt hún vissi að tíminn væri naumur „Það er ástæða fyrir bólgunni“ Óboðni sturtugesturinn sextán sentímetra kónguló Ekkert líf að verða hrædd á hverju vori Fréttatía vikunnar: NASA, Messi og Mette-Marit Stórslasaðist átján ára eftir ölvaðan ökumann: „Braut öll bein á vinstri hliðinni minni“ Myndaveisla: Veðrið leikur við íbúa höfuðborgarsvæðisins Stærstu rauðu flöggin á stefnumótaforritum Gestir geti fengið innsýn í skapandi samfélag Hafnar.hauss Backstreet Boys frumsýna lag nýrrar Hvolpasveitarmyndar Allt að 200 ára veggjakrot fannst við framkvæmdir Marteinn Helgi Sigurðsson er látinn Hefur þegar fengið starfstilboð Hvað veistu um… árið 2010? Lífseigustu mýturnar um offitu: „Það er ekki sjúkdómur að fitna“ Sjö heitustu brúðkaupstrendin í sumar „Ég var löngu tilbúin að giftast honum“ Rassaumhirða karla í sókn Leggja áherslu á liti, gleði og glimmer Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Hætt saman en ennþá vinir Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lára Clausen lýsir eftir stolnum Mustang Blendnar tilfinningar að fara á vinnumarkað á ný Lofuðu svörtu fólki lækningu en blekktu það til dauða „Ég passaði mig sérstaklega á því að tala ekki um Evrópusambandið“ Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Sjá meira