Prison Break fer ekki í verkfall á Íslandi 25. janúar 2008 10:25
Ekki verður gert sýningarhlé á þáttaröðinni Prison Break hér á landi. Allt benti til að gera þyrfti hlé á sýningum þessa vinsælu spennuþátta sökum verkfalls handritshöfunda í Bandaríkjunum, en nú er ljóst að ekki þarf að koma til þess. Skýringin liggur í því að framleiðendur þáttanna, sjónvarpsstöðin Fox, ákvað með stuttum fyrirvara að klára sýningar á þeim þáttum sem til voru en áður en verkfall hófst lágu fyrir handrit að fimm þáttum. Sýningar á þessum fimm þáttum hófust fyrir um viku síðan í Bandaríkjunum eftir að þeir höfðu verið í hléi síðan í nóvember. Umræddir fimm þættir fara tafarlaust í sýningar á Stöð 2 og verður fyrsti þeirra sýndur á sunnudaginn kemur. Þess ber að geta að sjaldan eða aldrei hafa vinsælir bandarískir framhaldsþættir fengist sýndir hérlendis svo skömmu eftir að þeir eru frumsýndir í bandarísku sjónvarpi, en lengi vel þurftu íslenskar sjónvarpsstöðvar að bíða í allt að ár eftir leyfi til að hefja sýningar á þáttum af sambærilegri stærðargráðu. Aðrir þættir Stöðvar 2 munu halda sínu striki enn sem komið er, utan Grey's Anatomy sem fór í verkfallshlé fyrir réttri viku síðan en hann verður tekinn aftur til sýningar um leið og verkfall leysist. Í þessari viku bárust af því fréttir að framleiðendur og handritshöfundar hefðu loksins fallist á að funda og gera tilraun til þess að ná sáttum, en launadeilan snýst hvað helst um kröfu handritshöfunda um að fá aukinn hlut af sölutekjum af sölu þátta og kvikmynda á netinu og DVD-diskum. Bendir því margt til að verkfallið leysist fyrr en síðar.
Mest lesið Sneri vörn í sókn í vinaleysinu Lífið Diljá Mist skikkuð í smá hvíld Lífið Cindy Crawford óhuggandi eftir andlátið Lífið Systkinin kítast: „Mættir alveg mæta meira upp í bústað og vinna“ Lífið „Mjög óraunveruleg og full af ást“ Lífið Hvað veistu um… Djúpavog? Lífið Arnaldur græddi 113 milljónir og Yrsa tuttugu Lífið Skvísur í svakalegu stuði á Svikasögum Menning Ein heitasta leikkona landsins á lausu Lífið Gjörningur til heiðurs pabba sem féll fyrir eigin hendi Lífið Fleiri fréttir Arnaldur græddi 113 milljónir og Yrsa tuttugu Í kossaflensi á listasýningu Sneri vörn í sókn í vinaleysinu Misstu sig þegar sigurinn var í höfn Systkinin kítast: „Mættir alveg mæta meira upp í bústað og vinna“ Diljá Mist skikkuð í smá hvíld Cindy Crawford óhuggandi eftir andlátið „Mjög óraunveruleg og full af ást“ Hvað veistu um… Djúpavog? Gjörningur til heiðurs pabba sem féll fyrir eigin hendi Ein heitasta leikkona landsins á lausu Einstakt einbýli Sigurðar og Láru Stjörnum prýdd fyrsta frumsýning vetrarins Heyrir aftur hljóð sem höfðu verið horfin í mörg ár Sonur Cindy Crawford er látinn Stjörnulífið: „Fer þér ekki vel, þessi drjóli“ Sjóðurinn tómur Var send í megrunarbúðir 11 ára gömul Krakkatía vikunnar: Nýjasti kisinn, rjúpa og vopn „Okkur langar bara til þess að gera þetta allt saman aftur“ Hætta að prenta Walliams eftir ásakanir um kynferðislegt áreiti Örvar og María Elísabet nýtt listapar Segir af sér eftir að hafa beitt mótmælendur ofbeldi „Maður getur varla beðið um meira“ Bakaríið í beinni útsendingu „Fóturinn á mér er ekki bólginn af því að ég missti barnið mitt“ Fréttatía vikunnar: Danir, pósthólf og Louis Vuitton Macklemore svarað Staðgöngumóðir var það Yfir sjöhundruð manns keypt af Guðna í forsölu Sjá meira