Lífið

Björk aflýsir tónleikum

Björk á tónleikum Nýja Sjálandi skömmu eftrir ljósmyndaraatvikið fræga.
Björk á tónleikum Nýja Sjálandi skömmu eftrir ljósmyndaraatvikið fræga. MYND/Getty
Björk aflýsti í dag fyrirhuguðum tónleikum sínum á Big Day Out tónlistarhátíðinni í Sidney á morgun. Læknir ráðlagði söngkonunni eindregið að hvíla raddböndin, en þau munu hafa verið bólgin eftir tónleika sem hún hélt í óperuhúsinu í Sidney í gær.

Björk átti að vera aðalnúmerið á hátíðinni, og að sögn skipuleggjenda gefst ekki tími til að finna annað atriði í stað hennar.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.