Lífið

Opna - nýtt bókaforlag hefur göngu sína

Sigurður Svavarsson og Guðrún Magnúsdóttir
Sigurður Svavarsson og Guðrún Magnúsdóttir

Nýtt forlag, Bókaútgáfan Opna, hefur hafið göngu sína. Stofnendur eru Guðrún Magnúsdóttir og Sigurður Svavarsson. Þau hafa í meira en 20 ár starfað við alla þætti bókaútgáfu, allt frá hugmynd til prentaðrar bókar.

Sigurður var síðast aðalútgáfustjóri Eddu en áður hafði hann meðal annars verið framkvæmdastjóri Máls og menningar. Guðrún var forstöðumaður framleiðsludeildar Máls og menningar og síðar Eddu. Hún annaðist verkstjórn á ritstjórn þessara forlaga og stýrði framleiðslu á hundruðum titla árlega. Þau Guðrún og Sigurður búa einnig að tengslum við stærstu útgáfufyrirtæki Evrópu og Norður-Ameríku, auk allra helstu útgáfufyrirtækja á Norðurlöndum.

Í tilkynningu frá forlaginu segir að markmið þeirra sem standa að forlaginuy sé að verða fyrsti valkostur þeirra höfunda, stofnana og félaga sem sækjast eftir að gefa út vandaðar og metnaðarfullar bækur þar sem kappkostað er að huga að hverju smáatriði í frágangi bókverksins og smíða ritverk sem standast tímans tönn."

Við upphaf starfsemi Opnu liggja fyrir samningar og áætlanir um útgáfu allmargra titla. Meðal væntanlegra verka er að finna stórvirki um myndlistarsögu mannkynsins, grundvallarrit um íslenska náttúru, fræðirit fyrir almenning um loftslagsmálin, ævintýralega ljósmyndabók um himinhvolfin, tvær íslenskar ævisögur, eftirtektarverðar dýralífsbækur og leiðsögurit um Ísland.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.