Lífið

Landinn tekur Brúðgumanum vel

Fimm þúsund manns sáu Brúðgumann, kvikmynd Baltasars Kormáks um helgina. Þetta er fimmta stærsta opnunarhelgi á íslenskri mynd frá upphafi. Baltasar er ekki óvanur því að lenda á þeim lista, en hann á sjálfur myndirnar í fyrsta sæti, Mýrina, og því þriðja, Hafið.

Myndin fór beint á topp tekjulistans eftir helgina. Myndin hefur fengið frábæra dóma, og þykir ná að að vera allt í senn, falleg, dramatísk, sorgleg en ekki síst bráðfyndin.

Það eru ekki bara gagnrýnendur og kvikmyndahúsagestir sem hafa hrifist af myndinni. Dreifingarfyrirtækið Wild Bunch í Frakklandi hefur lýst yfir áhuga á að sjá um sölu á myndinni erlendis. Fyrirtækið er eitt hið stærsta á sínu sviði í heimi, og sáu meðal annars um hina geysivinsælu 4 mánuði, 2 vikur og 3 dagar, sem vann meðal annars Gullpálmann á Cannes hátíðinni í fyrra.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.