Lífið

Allt frá silikoni til pólitíkur

Ásdís Olsen er anna umsjónamanna þáttarins.
Ásdís Olsen er anna umsjónamanna þáttarins. MYND/Haraldur Jónasson

„Mér finnst", nýr þáttur í stjórn Ásdísar Olsen og Kolfinnu Baldvinsdóttur hefur göngu sína á morgun á sjónvarpsstöðinni ÍNN.

Þær Ásdís og Kolfinna eru fastir umsjónarmenn þáttarins, en fá til sín fjölda kvenna til að ræða málin, þeirra á meðal Björk Jakobs, Ellý Ármanns, Elísabet Jökuls, Guðfríði Lilju, Guðrúnu Bergmann, Katrínu Júl, Kolbrúnu Bergþórs, Margréti Pálu og Ólínu Þorvarðar.

Þátturinn verður ekki byggður upp á hefðbundnum viðtölum, heldur samræðum, í svipuðum anda og "The View", "Þetta er meira eins og kaffihús en sjónvarp", segir Ásdís, en ekkert handrit eða fyrirfram ákveðin umræðuefni verða í þáttunum, og þáttastjórnendur ráða minnstu um hvað er rætt.

Prufuupptaka að þáttunum var gerð í gær, og var að sögn Ásdísar bæði rifist og tekist á, og spannaði umræðan allt frá silikonaðgerðum yfir í vangaveltur um pólitík.

Aðspurð hvort þátturinn sé settur til höfuðs Egils Helga, sem hefur legið undir ámæli fyrir rýran hlut kvenna í þáttum sínum, segir Ásdís að það megi allavega líta svo á, en aðalatriðið sé að konur þurfa að heyrast meira og hærra og nú er kominn vettvangur fyrir kraftmiklar og háværar umræður - því það er svo gaman þegar konur koma saman og takast á.

"Mér finnst" verður á dagskrá ÍNN klukkan átta á mánudögum, miðvikudögum og föstudögum. Hægt er að horfa á stöðina á rás 20 á Digital Íslandi, eða á VefTV Visis.is

Smelltu hér til að horfa á þáttinn á VefTV Vísis.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.