Lífið

Manga á Borgarbókasafninu

Mynd Karítasar Gunnarsdóttur var ein þeirra sem hlaut viðurkenningu
Mynd Karítasar Gunnarsdóttur var ein þeirra sem hlaut viðurkenningu
Sýning á manga-teikningum íslenskra barna og unglinga opnar í Borgarbókasafni Reykjavíkur föstudaginn 18. janúar klukkan fimm. Sýningin er í samstarfi við sendiráð Japans á Íslandi, en teikningarnar eru afrakstur samkeppni sem sendiráð hélt á síðasta ári, í tilefni af komu hr Nobuyuki Tsugata, sérfræðings í japönskum teiknimyndum.

Manga, eða japanskar myndasögur, hafa notið vaxandi hylli á vesturlöndum á undanförnum árum og eru sérlega vinsælt efni á bókasöfnum. Samhliða þessum vinsældum hafa ungmenni tileinkað sér teiknistíl formsins, en hægt er að læra hann af fjölda teiknikennslubóka um manga.

Á sýningunni má sjá tæplega fjörutíu myndir eftir sautján börn og unglinga á aldrinum ellefu til tuttugu ára.

Fjórir unnu til viðurkenninga í keppninni: Fjóla Oddgeirsdóttir, Karítas Gunnarsdóttir, Nökkvi Jarl Bragason og Signý Æsa Káradóttir.

Sýningin stendur til 6. febrúar.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.