Tíu hús sem gætu verið mikilvægari en Svandís Svavarsdóttir 14. janúar 2008 15:15 Svandís Svavarsdóttir segir að enginn pólitíkus sé merkilegri en Laugavegur 4-6. „
Það er enginn pólitíkus merkilegri en Laugavegur 4-6 í mínum huga." Þessi orð hefur Morgunblaðið eftir Svandísi Svavarsdóttur, formanni skipulagsráðs Reykjavíkurborgar, á fundi um skipulag miðborgarinnar um helgina. Hún sagði að það skipti því engu máli hver skipti um skoðun á hvaða tímapunkti eða hver ákvað hvað. Svandís kollsteypti afstöðu sinni til húsanna því að í desember 2006 samþykkti hún deiliskipulag sem gerði ráð fyrir að húsin að Laugavegi 4-6 myndu víkja. Nú leggst hún hins vegar gegn niðurrifi húsanna. Vísi þykir samanburður Svandísar á mikilvægi stjórnmálamanna athyglisverður og hefur því búið til lista yfir 10 hús sem gætu verið mikilvægari en Svandís Svavarsdóttir Listinn er hér að neðan 1. Snorrabraut 61Gistiheimili Snorra að Snorrabraut 61 hefur hýst margan manninn frá því að það tók til starfa. Húsið er byggt 1938 og skipar því ríkan sess í menningarsögu Reykvíkinga síðustu 70 árin. 2. Hverfisgata 113-115Aðalstöðvar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu hafa verið að Hverfisgötu 113-115 síðustu fjóra áratugi. Húsið er byggt 1964. Auk þess að ylja mörgum lögreglumönnum um hjartaræturnar er ljóst að húsið er órjúfanlegur hluti af sögu Hlemmtorgs í hartnær hálfa öld. Nú stendur hins vegar til að byggja nýjar höfuðstöðvar fyrir lögregluna. 3. Laugavegur 76Að Laugavegi 76 er Vinnufatabúðin meðal annars til húsa. Húsið er byggt 1936. 4. Laugavegur 54Húsið að Laugavegi 54 er byggt 1904 og hýsir veitingastaðinn Svarta kaffið. Laugavegur 30Húsið að Laugavegi 30 hýsir nú skemmtistaðinn Dillon og er byggt árið 1907. Bankastræti 6Bankastræti 6 var byggt árið 1875. Árið 1927 tók þar til starfa Tóbaksverslunin Bristol en við eigendaskipti árið 1985 breyttist nafn hennar í Tóbaksverslunina Björk. 7. Austurstræti 4Austurstræti 4 hýsir basar Thorvaldsensfélagsins. Húsið var byggt árið 1900. Thorvaldsenskonur keyptu húsið árið 1905 og hefur rekið basar þar síðan. 8. Aðalstræti 6Aðalstræti 6 var lengst húsnæði Morgunblaðsins og var lengst af kallað Morgunblaðshöllin. Húsið var byggt 1955 og er því komið vel á sextugsaldur. 9. Hafnarstræti 1-3Hafnarstræti 1-3 hýsir veitingastaðinn Café Victor, þar sem margur maðurinn hefur kneyfað ölið. Húsið var byggt árið 1910 og er hið allra glæsilegasta. 10. StjórnarráðshúsiðAf öðrum húsum ólöstuðum er Stjórnarráðshúsið eitt það allra glæsilegasta á þessum lista. Undirbúningur að byggingu hússins hófst 1761 en byggingu þess var að fullu lokið veturinn 1770-71. Eins og flestir vita var húsið fyrst notað sem fangelsi en hýsir nú skrifstofur forsætisráðherra. Bankastræti 6Laugavegur 30Aðalstræti 6StjórnarráðshúsiðLaugavegur 54Hverfisgata 113 - 115
Mest lesið Sneri vörn í sókn í vinaleysinu Lífið Diljá Mist skikkuð í smá hvíld Lífið Cindy Crawford óhuggandi eftir andlátið Lífið Systkinin kítast: „Mættir alveg mæta meira upp í bústað og vinna“ Lífið Hvað veistu um… Djúpavog? Lífið „Mjög óraunveruleg og full af ást“ Lífið Veltir fyrir sér hvers vegna hún sé alltaf gröð í flugvél Lífið Arnaldur græddi 113 milljónir og Yrsa tuttugu Lífið Skvísur í svakalegu stuði á Svikasögum Menning Ein heitasta leikkona landsins á lausu Lífið Fleiri fréttir Veltir fyrir sér hvers vegna hún sé alltaf gröð í flugvél Arnaldur græddi 113 milljónir og Yrsa tuttugu Í kossaflensi á listasýningu Sneri vörn í sókn í vinaleysinu Misstu sig þegar sigurinn var í höfn Systkinin kítast: „Mættir alveg mæta meira upp í bústað og vinna“ Diljá Mist skikkuð í smá hvíld Cindy Crawford óhuggandi eftir andlátið „Mjög óraunveruleg og full af ást“ Hvað veistu um… Djúpavog? Gjörningur til heiðurs pabba sem féll fyrir eigin hendi Ein heitasta leikkona landsins á lausu Einstakt einbýli Sigurðar og Láru Stjörnum prýdd fyrsta frumsýning vetrarins Heyrir aftur hljóð sem höfðu verið horfin í mörg ár Sonur Cindy Crawford er látinn Stjörnulífið: „Fer þér ekki vel, þessi drjóli“ Sjóðurinn tómur Var send í megrunarbúðir 11 ára gömul Krakkatía vikunnar: Nýjasti kisinn, rjúpa og vopn „Okkur langar bara til þess að gera þetta allt saman aftur“ Hætta að prenta Walliams eftir ásakanir um kynferðislegt áreiti Örvar og María Elísabet nýtt listapar Segir af sér eftir að hafa beitt mótmælendur ofbeldi „Maður getur varla beðið um meira“ Bakaríið í beinni útsendingu „Fóturinn á mér er ekki bólginn af því að ég missti barnið mitt“ Fréttatía vikunnar: Danir, pósthólf og Louis Vuitton Macklemore svarað Staðgöngumóðir var það Sjá meira