Bæjarlistamaður Seltjarnaress 13. janúar 2008 15:25 Kristín G. Gunnlaugsdóttir og Sólveig Pálsdóttir formaður menningarnefndar Seltjarnarness.
Kristín G. Gunnlaugsdóttir myndlistamaður var útnefnd bæjarlistamaður Seltjarnarness 2008 við hátíðlega athöfn á Bókasafni Seltjarnarness í gær. Það er menningarnefnd Seltjarnarness sem stendur fyrir valinu á bæjarlistamanni Seltjarnarness og er Kristín12 listamaðurinn sem hlýtur nafnbótina. Fyrri bæjarlistamenn eru Gunnar Kvaran sellóleikari, Herdís Tómasdóttir veflistakona, Ragna Ingimundardóttir leirlistakona, Guðrún Einarsdóttir myndlistarkona, Messíana Tómasdóttir myndlistarkona, Bubbi Morthens tónlistarmaður, Margrét Helga Jóhannsdóttir leikkona, Auður Hafsteinsdóttir fiðluleikari, Sigríður Þorvaldsdóttir leikkona og Jóhann Helgason tónlistarmaður sem er fráfarandi bæjarlistamaður. Í ávarpi Sólveigar Pálsdóttur, formanns menningarnefndar kom fram að þær umsóknir sem bárust nefndinni hefðu verið margbreytilegri nú en oft áður og stóð nefndin frammi fyrir vandasömu vali á milli fjölhæfra listamanna. Í umsögn sinni um verk Kristínar Gunnlaugsdóttur sagði Sólveig verkin jarðnesk og ójarðnesk í senn í fegurð sinni. Í þeim væru skýrar línur, hreinir litir, kyrrð, staðar-og tímaleysi, rökfærsla á eigin forsendum. Sólveig kvað það einlæga von menningarnefndar að viðurkenningin myndi efla, styrkja og hvetja Kristínu til enn frekari dáða. Er Kristín tók við viðurkenningunni ásamt 600 þúsund króna fjárstyrk sagðist hún ætla að heimsækja skóla bæjarins með það fyrir augum að kynna börnum og unglingum hvernig myndlistarmaður vinnur. Sýna þeim hvernig maður býr til málverk frá grunni, blandar liti og hugsar sér mynd. Hvernig hugmyndir fæðast og þroskast, hvernig þær eru unnar og færðar yfir á myndflötinn. Erfiðleikana í vinnslunni, áhættuna sem þarf að taka og hvernig maður þarf að vera sjálfum sér trúr. Sýna þeim inn í raunveruleika listamannsins, fjárhagslega áhættu og félagslega einsemd. Kristín er fædd á Akureyri þann 15. apríl 1963. Foreldrar hennar voru Gunnlaugur P. Kristinsson fræðslufulltrúi Kaupfélagi Eyfirðinga á Akureyri og Gunborg Kristinsson bókavörður, fædd í Svíþjóð. Kristín hefur verið starfandi myndlistarmaður í 20 ár. Hún hefur búið og unnið að list sinni á Seltjarnarnesi frá vori 2004.
Mest lesið 50+: Fólk upplifir sig yngra en áður – og þróunin heldur áfram Áskorun Gefa yfir 50 vinninga í beinni útsendingu Lífið Margaret Kerry er látin Bíó og sjónvarp Vildi hjálpa öðrum þótt hún vissi að tíminn væri naumur Lífið Óboðni sturtugesturinn sextán sentímetra kónguló Lífið Krakkatía vikunnar: HM, risaeðlur og naglaklippur Lífið Ekkert líf að verða hrædd á hverju vori Lífið Ósk um öfgafulla ást og bæling í bakherbergjunum Gagnrýni Fréttatía vikunnar: NASA, Messi og Mette-Marit Lífið „Það er ástæða fyrir bólgunni“ Lífið Fleiri fréttir Gefa yfir 50 vinninga í beinni útsendingu Krakkatía vikunnar: HM, risaeðlur og naglaklippur Vildi hjálpa öðrum þótt hún vissi að tíminn væri naumur „Það er ástæða fyrir bólgunni“ Óboðni sturtugesturinn sextán sentímetra kónguló Ekkert líf að verða hrædd á hverju vori Fréttatía vikunnar: NASA, Messi og Mette-Marit Stórslasaðist átján ára eftir ölvaðan ökumann: „Braut öll bein á vinstri hliðinni minni“ Myndaveisla: Veðrið leikur við íbúa höfuðborgarsvæðisins Stærstu rauðu flöggin á stefnumótaforritum Gestir geti fengið innsýn í skapandi samfélag Hafnar.hauss Backstreet Boys frumsýna lag nýrrar Hvolpasveitarmyndar Allt að 200 ára veggjakrot fannst við framkvæmdir Marteinn Helgi Sigurðsson er látinn Hefur þegar fengið starfstilboð Hvað veistu um… árið 2010? Lífseigustu mýturnar um offitu: „Það er ekki sjúkdómur að fitna“ Sjö heitustu brúðkaupstrendin í sumar „Ég var löngu tilbúin að giftast honum“ Rassaumhirða karla í sókn Leggja áherslu á liti, gleði og glimmer Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Hætt saman en ennþá vinir Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lára Clausen lýsir eftir stolnum Mustang Blendnar tilfinningar að fara á vinnumarkað á ný Lofuðu svörtu fólki lækningu en blekktu það til dauða „Ég passaði mig sérstaklega á því að tala ekki um Evrópusambandið“ Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Huggulegustu hommar landsins „loksins“ giftir Sjá meira