Lífið

Pabbar vilja Ólaf Ragnar áfram sem forseta

Ólafur Ragnar Grímsson nýtur stuðnings feðra í netheimum.
Ólafur Ragnar Grímsson nýtur stuðnings feðra í netheimum.

„Okkur þykir mikilvægt að hafa mann með mikla reynslu og því bendum við á Ólaf Ragnar sem næsta forseta," segja pabbar.is



Vefurinn www.pabbar.is segir sig vefheim íslenskra feðra. Vefnum er haldið útaf nokkrum karlmönnum og einum kvenmanni.

Ólafur Ragnar hefur gefið út að hann muni bjóða sig fram til forseta Íslands fjórða kjörtímabilið í röð. Raddir hafa einnig heyrst um að Ástþór nokkur Magnússon hyggist bjóða sig fram gegn Ólafi en það hefur hann gert tvisvar áður.

Það er því greinilegt að Ólafur Ragnar hefur stuðning pabbanna í netheimum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.