Lífið

Miðasala hafin á Tommy Lee og Dj Aero

Tommy Lee í góðum gír.
Tommy Lee í góðum gír.
Miðasala á Burn Partýið á Nasa 25 janúar þar sem Tommy Lee og Dj Aero munu gera allt vitlaust hefst í dag á midi.is.

Tommy Lee þarf varla að kynna fyrir neinum. Hann stofnaði Mötley Crüe, lék annað aðalhlutverka í hressilegu heimamyndbandi með eiginkonu sinni Pamelu Anderson, var með sína eigin sjónvarpsþætti og lamdi Kid Rock í beinni á MTV verðlaunaafhendingunni, auk þess að vera einn meðlima í hinni Magna-lausu hljómsveit Supernova.

Síðustu mánuði hefur Tommy verið að rokka heiminn með DJ Aero þar sem hann spilar af einstakri snilld á trommur og syntha yfir dúndrandi klúbbatónlist. Tónleikarnir hefjast á NASA klukkan 23.00 á föstudaginn. Verð miða í forsölu er 3000kr.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.