Hundurinn Lúkas missti sig í steikunum yfir jólin Breki Logason skrifar 4. janúar 2008 13:00 Hundurinn Lúkas hafði það fínt yfir hátíðarnar. „
Hann hefur það bara ljómandi gott og er orðinn feitur og pattaralegur enda hefur hann legið í steikunum yfir hátíðarnar," segir Kristjana Margrét Svansdóttir eigandi Lúkasar. Lúkas er óumdeilanlega frægasti hundur landsins og sá eini sem hefur leikið eitt af aðalhlutverkunum í Áramótaskaupinu. Kristjana segir að mikið hafi verið hlegið af Skaupinu á sínu heimili sem var óvenju gott í ár að hennar mati. „Húmorinn hitti beint í mark og var hvorki ljótur né óþarfur." Lúkas er allur að koma til og var mikið í steikunum yfir hátíðarnar eins og fjölskyldan öll. Hann hefur þó verið í stífri umhverfisþjálfun og var hinn brattasti yfir öllum flugeldunum um áramótin. „Hann stóð sig með prýðum enda erum við búin að vinna vel í allri hræðslu og hann er orðinn mög öruggur," segir Kristjana og bætir því við að hún hafi fengið ref tilbaka af Hlíðarfjalli og hafi verið að vinna í því að breyta honum aftur í hund. „Hann er orðinn eins og hann var." Lúkas týndist í byrjun maí og fannst ekki fyrr en í enda júlí sem er dágóður tími. Kristjana segist ekki vita á hverju hann nærðist en grunar að hann hafi sótt í ruslahaug sem er við rætur Hlíðarfjalls. Lúkas er orðinn heimsfrægur á Akureyri og vekur lukku hvar sem hann kemur. „Litlu krökkunum finnst mjög merkilegt að hitta hann og svo lendir maður stundum í því að fólk spyr hvort þetta sé svona Lúkasarhundur. Síðan spyr það hvort þessi sé nokkuð að týnast en áttir sig ekki á því að þetta er hinn eini sanni," segir Kristjana og hlær. Kristjana segist ekki sjá fram á annað en að Lúkas verði áfram feitur og pattaralegur. Hún vill nota tækifærið og þakka öllum þeim sem hálpuðu við leitina að hundinum. „Og þá sérstaklega mömmu og henni Klöru, en þær fundu hundinn."
Mest lesið Leiðir skilja hjá Ólafi Ragnari og Dorrit Lífið Dorrit um tíðindin: „💦💦💦💦💦💦“ Lífið Perez Hilton fluttur á spítala eftir sjálfsskaða í beinu streymi Lífið Sonur Mari og Njarðar fæddur Lífið Hvað er í gangi á Svalbarða? Lífið Dregur sig í hlé: „Þessi aumingja kona er að deyja beint fyrir framan okkur“ Lífið Líkamlega lemstruð og fötin í rúst en vel þess virði Lífið Sankað að sér milljónum fylgjenda á tíu ára ferli Lífið Hefur „ekki hugmynd um hvað er í gangi“ en kemur Grande samt til varnar Lífið Good Morning America í beinni frá Bláa lóninu á almyrkva Lífið Fleiri fréttir Dorrit um tíðindin: „💦💦💦💦💦💦“ Sankað að sér milljónum fylgjenda á tíu ára ferli Hvað er í gangi á Svalbarða? Hefur „ekki hugmynd um hvað er í gangi“ en kemur Grande samt til varnar Good Morning America í beinni frá Bláa lóninu á almyrkva Perez Hilton fluttur á spítala eftir sjálfsskaða í beinu streymi Sonur Mari og Njarðar fæddur Líkamlega lemstruð og fötin í rúst en vel þess virði Leiðir skilja hjá Ólafi Ragnari og Dorrit „Ég vil vera bestur í öllu“ Dregur sig í hlé: „Þessi aumingja kona er að deyja beint fyrir framan okkur“ Opnar sig um þunglyndi og depurð Gummi Google selur glæsihús á Grímshaga Fyrsta platan í tuttugu ár Stjörnulífið: Heiðdís Rós komin heim Myndaveisla: Stjörnufans fyrir norðan á Einni með öllu „Ég er svolítið svífandi á bleiku skýi“ Sló pabba út með að kasta sér yfir línuna Vill skapa staðinn sem sonur hennar þurfti en fann aldrei Innipúki er ekki það sama og fýlupúki „Við getum ekki kvartað undan veðrinu“ Klukkutíma bröns getur kostað marga daga í rúminu Krakkatía vikunnar: Hungurleikar, biskup og geirfuglinn Big Pussy er látinn Fréttatía vikunnar: Vasaþjófar, KFC og morðhótanir Fiðrildi og flugeldar í maganum í Herjólfsdal Selur aflátsbréf fyrir forsjálustu syndgara helgarinnar Loðinn laumufarþegi sníkti far frá Úlfarsfelli Þjóðhátíð sett í blíðviðri í Eyjum Hættur í Jesus Christ Superstar eftir útgáfu lags til stuðnings Ísrael Sjá meira