Lífið

Afmælisdagurinn gæti komið þér í belgíska sjónvarpið

Starfsfólk myndarinnar
Starfsfólk myndarinnar MYND/Hornafjordur.is

Belgíska ríkissjónvarpið leitar nú að þáttakendum í nýrri heimildarmynd sem fjallar um misjöfn örlög fólks sem á það eitt sameiginlegt að hafa fæðst sama dag. Í myndinni er fylgst með fólki sem fæðist á sama degi á mismunandi stöðum í heiminum, og er tilgangurinn að reyna svara spurningunni um hvernig líf fólks væri hefði það fæðst í öðrum heimshluta.

Annelore De Donder, sem framleiðandi hjá Woestijnvis, sem framleiðir þættina, hafði samband við fréttasíðuna Hornafjörður.is, og bað um koma leitinni á framfæri.

Leitað er að fólki sem er fætt á eftirtöldum dögum:

29. apríl 1933

5. apríl 1943

18. julí 1948

19. julí 1948

20. ágúst 1949

2 . maí 1950

11. febrúar 1952

18. janúar 1956

5. maí 1956

27. ágúst 1958

30. desember 1960

24. júlí 1962

20. júlí 1963

24. mars 1964

14. janúar 1965

27. janúar 1965

10. febrúar 1965

5. október 1968

5. febrúar 1969

6. apríl 1969

26. mars 1975

4. nóvember 1977

27. desember 1979

3 . maí 1981

24. júlí 1982

Þegar eru fundnir þáttakendur frá fjölda landa í Evrópu, Asíu, Norður- og Suður-Ameríku og Ástralíu.

Annelore segir í viðtali við hornafjord.is að fólk hafi samband við fyrirtækið hafi það áhuga á að taka þátt í verkefninu. Starfsfólk hringir svo hringi í þá sem koma til greina og spyrja viðkomandi ýmissa spurninga um bersku fjölskyldu, áhugamál, vinnu og fleira. Út frá svörum fólks er búinn til „prófíll" sem er settur í gagnagrunn sem endanlegir þáttakendur eru svo valdir úr.

Þeir sem eru valdir fá svo heimsókn frá starfsfólki myndarinnar og belgískum „afmælistvíbura" sínum. Fylgst er með „tvíburunum" saman í nokkra daga mismunur á lífsháttum þeirra skoðaður.

Engin laun eru greidd fyrir þáttökuna, en þess gætt að fólk verði ekki fyrir kostnaði vegna hennar. Þeir sem hafa áhuga á að taka þátt í verkefninu geta haft samband við Annelore í síma +32 23 03 35 88 eða á netfanginu twins@docfish.be, eða adedonde@woestijnvis.be.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.