Lífið

Habitat-parið gengur í hjónaband

„Það voru einhverjir guðir góðir við okkur,“ sagði Ingibjörg Þorvaldsdóttir, en hún og Jón Arnar Guðbrandsson giftu sig í Dómkirkjunni í miðju aftakaveðrinu sunnudaginn 30. desember síðastliðinn. „Athöfnin var klukkan hálfsex og við vorum svo heppin að það lægði akkúrat á meðan svo það komust allir inn í kirkjuna.“

Ingibjörg segir að það hafi staðið til í nokkurn tíma að gifta sig, en parið hefur verið saman í fimm ár og á tvö börn, eins og sjö ára. Það hefur þó væntanlega verið nóg að gera hjá hjónunum en þau reka Habitat á Íslandi auk fimm Oasis-verslana í Danmörku.

Eftir athöfnina fögnuðu gestir með hjónunum á skemmtistaðnum Rúbín. Ingibjörg segir að það hafi verið ævintýri líkast. Staðurinn er afar fallegur og sérstakur, en hann er byggður utan í Öskjuhlíðina og kemur ber klöppin í stað eins veggsins.

Þau munu svo halda í brúðkaupsferð með börnin tvö á föstudaginn, en þau ætla að sleikja sólina á Tenerife í tíu daga.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.