Verður að bregðast við ef olíutunnan fer í 200 dollara 21. maí 2008 16:18 MYND/Vilhelm
Geir H. Haarde forsætisráðherra segir að stjórnvöld verði að móta áætlun um viðbrögð ef olíuverð fari í 200 dollara á tunnu á næstu mánuðum. Það verði að fá fólk til þess að nota aðra orkugjafa en jarðefnaeldsneyti, til dæmis metan. Þetta kom fram í fyrirspurnartíma á Alþingi í dag. Valgerður Sverrisdóttir, varaformaður Framsóknarflokksins, vakti athygi á hækkandi eldsneytisverði en tunnan af olíu er nú komin yfir 130 dollara. Hún sagði að spár gerðu ráð fyrir að hún færi yfir 150 dollara fyrir árslok og jafnvel í 200 dollara á næsta ári. Spurði hún hvort einhver vinna væri í gangi af hálfu stjórnvalda til þess að bregðast við þessu og minnti á stefnumörkun fyrri ríkisstjórnar um umhverfisvæna samgöngukosti. Geir H. Haarde sagði þetta alvarlegt mál sem setti svip sinn á efnahagslíf í öllum löndum. Ef olíuverð færi í 200 dollara væri verulega illt í efni. Það yrði að móta áætlun um að bregðast við því. Geir sagði það enga þýðingu hafa að hnika við gjöldum ríkisins um nokkrar krónur niður á við. Það yrði að fá fólk til þess að breyta hegðun sinni og nota aðra orkugjafa. Benti hann á að metan væri innlendur orkugjafi sem Íslendingar ættu að nýta betur og grípa þyrfti til aðgerða til að stuðla að því. Þingheimur hlyti að geta sameinast um að breyta þessu.
Mest lesið Kýld niður fjallið og hafi svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Innlent Sjö fluttir á slysadeild eftir að bíl var ekið á tvo ljósastaura Innlent Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi Innlent Bilun hjá Teya veldur löngum röðum Innlent Segir ljóst að málið verði Lindsay Clancy dýrkeypt Erlent Myndband af banaslysinu í töluverðri dreifingu Innlent „Ég hafna þeirri fullyrðingu alfarið“ Innlent Hátt í áttatíu eftirskjálftar Innlent Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð á Akureyri Innlent Fjarhægrimenn gætu fundið bragðið af völdum í fyrsta sinn Erlent Fleiri fréttir Bilun hjá Teya veldur löngum röðum Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi „Ég hafna þeirri fullyrðingu alfarið“ „Búningadjamm“ á Þjóðminjasafninu í dag Elti blóðugan brotaþola inn á lögreglustöðina Ólga innan SÁÁ og upprisa AfD Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð á Akureyri Sjö fluttir á slysadeild eftir að bíl var ekið á tvo ljósastaura Hátt í áttatíu eftirskjálftar Handteknir eftir líkamsárás Kýld niður fjallið og hafi svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Jarðskjálfti í Brennisteinsfjöllum Rafmagnslaust var í Reykjavík og Mosfellsbæ Enginn andvígur hvalveiðum Banna innfluttar dýraafurðir frá Brasilíu Skordýr í súpu skólabarna Sérsveitaraðgerð við heimahús á Akureyri Anna Lilja og Sæunn sýslumenn tímabundið Finnbjörn býður sig ekki aftur fram til forseta ASÍ Telja þjóðaratkvæðagreiðsluna hafa styrkt Samfylkinguna Hugsi yfir framlagi Kristrúnar Fella niður gatnagerðargjald vegna bílakjallara Næstum allar ábendingarnar um Áfram Ísland Segir borgina vinda ofan af „langvarandi rugli og vitleysu“ Myndband af banaslysinu í töluverðri dreifingu Verjendur fordæma boðaðar breytingar: „Stefnum í eitthvað fasista-, kommúnistalögregluríki“ Myndbönd af banaslysinu í dreifingu og kvartanir vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar Langreyðarkvótinn mun tæplega nást Fylgdarakstur um Hvalfjarðargöng að næturlagi í næstu viku Eyvindur P. Eiríksson látinn Sjá meira