Lífið

Bruni í sínu fyrsta viðtali eftir brúðkaupið

Forsetafrú Frakklands, Carla Bruni, neitaði því að hafa gifst Nicolas Sarkozy Frakklandsforseta í of miklum flýti og varði eiginmann sinn sem hefur fallið í vinsældum, í sínu fyrsta viðtali eftir hið umtalaða brúðkaup.

Viðtalsins hefur verið beðið með nokkurri eftirvæntingu en það birtist í franska tímaritinu L´Express. Í því reyndi Bruni að mýka ímynd sína og fullvissa Frakka um að hún muni taka sitt nýja hlutverk alvarlega.

Sarkozy giftist Bruni, sem er ítölsk og á að baki farsælan fyrirsætu og tónlistarferil, aðeins þremur mánuðum eftir að þau kynntust, og fjórum mánuðum eftir að skilnað Sarkozy við eignkonu sína Ceciliu.

Þetta hefur Frökkum fundist bera merki um að Sarkozy sé of hvatvís eða fljótfær. En Bruni segir það alrangt.

"Þetta er ekki rétt. Hlutirnir gerðust ekki fljótlega hjá mér og Nicolas. Þeir gerðust strax. Þar afleiðandi fannst mér þetta taka frekar langan tíma hjá okkur," er haft eftir Bruni í L´Express.

"Það var enginn efi í huga mínum. Þess vegna vildi ég giftast honum strax," bætir hún við.

 

 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.