Lífið

Britney gæti misst forræðið fyrir fullt og allt

MYND/Getty
Havaríið í kringum Britney Spears í nótt gæti endanlega kostað hana forræðið yfir sonum sínum tveimur. Dómari veitti Kevin Federline, fyrrverandi eiginmanni hennar, tímabundið forræði yfir drengjunum í haust, en Britney hefur haft umgengnisrétt við þá. Það skilyrði var sett að hjónin fyrrverandi neyttu hvorki áfengis né fíkniefna á meðan börnin væru hjá þeim.

Ef í ljós kemur að Britney hafi verið undir áhrifum vímuefna þegar lögregla sótti syni hennar í gærkvöld gæti lögfræðingur K-Fed því farið fram á að hann fengi umsvifalaust fullt forræði yfir þeim.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.