Enski boltinn

Myndbandsupptaka af barsmíðum Joey Barton

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Joey Barton, leikmaður Newcastle.
Joey Barton, leikmaður Newcastle. Nordic Photos / Getty Images

Yfirvöld í Bretlandi hafa birt myndbandsupptöku af atvikinu sem leiddi til þess að Joey Barton var dæmdur í sex mánaða fangelsi.

Smelltu hér til að sjá myndbandið. Atvikið átti sér í stað í Liverpool en Barton er fæddur þar.

En þar með er sorgarsögu Joey Barton ekki lokið. Hann játaði í gær að hafa ráðist á Ousmane Dabo, fyrrum liðsfélaga sinn hjá Manchester City, á æfingu í maí í fyrra.

Beðið er eftir dómsuppkvaðningu í því máli. Hann var í kjölfarið á árásinni seldur frá Manchester City til Newcastle þar sem hann skrifaði undir fimm ára samning.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×