Ferguson: Menn hæðast að Sepp Blatter 28. október 2008 15:38 AFP
Sepp Blatter, forseti FIFA, á það á hættu að missa trúverðugleika sinn sem valdamesti maður í knattspyrnuheiminum. Þetta segir Sir Alex Ferguson, knattspyrnustjóri Manchester United í viðtali við tímaritið GQ. "Ég held að orðspor Blatters sé í hættu og að málið sé komið á það stig að menn í knattspyrnuheiminum séu farnir að hæðast að honum. Ég veit ekki hvort hann er bara að verða of gamall eða hvað það er. Sjáið bara harðstjórana í Afríku," sagði Ferguson. Hann var því næst spurður hvort hann væri að líka Blatter við Robert Mugabe, forseta Zimbabwe. "Það væri fáránlegt. Ég er bara að segja að hann hafi gefið út frá sér nokkrar fáránlegar yfirlýsingar í valdamiklu starfi sínu og því eigi hann mjög á hættu að missa allan trúverðugleika," sagði Ferguson. Blatter, sem er 72 ára gamall, vakti reiði Ferguson fyrr á þessu ári þegar hann lýsti því yfir að Cristiano Ronaldo leikmaður United væri þræll hjá félaginu. "Það olli miklu fjaðrafoki þegar hann lýsti þessu yfir og það er engin furða, því hann gaf þetta út árið eftir að haldið var upp á 200 ára afmæli afnáms þrælahalds." Ferguson gerir því skóna í þessu sama viðtali að Real Madrid hafi keypti varnarmanninn Gabriel Heinze af United í óeðlilegum tilgangi. Hann hafi verið góður vinur Cristiano Ronaldo og spænska félagið hafi viljað nota hann sem beitu til að krækja í Portúgalann. "Ég held ekki að þeir hafi haft áhuga á Heinze í raun og veru - þó hann sé góður leikmaður. Það sem vakti fyrir þeim var að nota hann til að ná í Ronaldo," sagði Ferguson.
Enski boltinn Mest lesið Syrgja átján ára fimleikakonu Sport Arnar Þór ráðinn til FIFA: „Himinlifandi að hafa fengið þetta starf“ Fótbolti Fyrsta mark Wirtz í þriðja sigrinum í röð Enski boltinn Írar ætli að fylgja eftir tillögu Heimis Fótbolti Watkins hélt ótrúlegri sigurgöngu Villa áfram Enski boltinn Arsenal aftur á toppinn Enski boltinn Gerir grín að klæðaburði liðsfélaga síns Körfubolti Hafnaði 34 milljónum: „Vil ekki styðja kerfi sem býr til fíkn og eyðileggur líf“ Sport Salah sakaður um dýfu: „Getum ekki keppt við Egypta og dómarana“ Fótbolti Cherki aðalmaðurinn í sigri City Enski boltinn Fleiri fréttir Aldrei spilað þarna en sagði strax já „Viss um að ég myndi skora einn daginn“ Watkins hélt ótrúlegri sigurgöngu Villa áfram Schade og Jiménez sendu Brentford og Fulham í efri hlutann Arsenal aftur á toppinn Fyrsta mark Wirtz í þriðja sigrinum í röð Cherki aðalmaðurinn í sigri City Úlfarnir heiðruðu minningu Jota Andri Lucas frá í mánuð Sjáðu dönsku þrumuna sem færði United-mönnum öll þrjú stigin Segir að Arsenal stefni á sögulega fernu á þessu tímabili Amorim endaði viðtalið á gamansömum nótum „Við eigum heima í Evrópu“ Daninn skaut Man. United upp fyrir Liverpool Amorim segir strákinn í frystinum vera framtíðin hjá Man. United Martinez með fyrirliðabandið og báðir Fletcher-bræðurnir á bekknum Havertz gæti snúið aftur á næstu dögum Alfons og Willum sáu tvö rauð spjöld fara á loft Synir Diogo Jota leiða leikmenn út á Anfield Cunha vill skemmta og Howe treystir leikmönnum United horfir til Þýskalands eftir höfnun Semenyo Haaland stóðst vigtun eftir jólin Hápunktarnir hingað til í enska boltanum Goðsögn fallin frá Kærður af knattspyrnusambandinu Bestu jólamörkin: Drogba, Scholes eða Giroud? Van de Ven bað Isak afsökunar: „Vildi ekki meiða hann“ Hvers vegna heillast stórliðin svo af Semenyo? Stewart, Snoop og Modric í eina sæng Vill ekki segja hversu lengi Bruno er frá Sjá meira