Innlent

Aðstoðarmannafrumvarp samþykkt eftir fimm og hálfs tíma umræður

MYND/Stefán
Þingmenn samþykktu á Alþingi í dag frumvarp um þingfararkaup alþingismanna og þingfararkostnað sem gerir ráð fyrir að hluti þingmanna fái aðstoðarmann. Frumvarpið var samþykkt eftir rúmlega fimm og hálfs tíma umræðu á þingi.

Samkvæmt frumvarpinu er gert ráð fyrir formenn stjórnmálaflokka í stjórnarandstöðu eigi rétt á að ráða sér aðstoðarmann í fullt starf en þingmenn Norðvestur-, Norðaustur- og Suðurkjördæma eiga rétt á að hafa aðstoðarmann í þriðjungsstarfi. Þó geta þingmenn slegið saman í einn aðstoðarmann, það er þrír landsbyggðarþingmenn geta deilt einum aðstoðarmanni.

Ögmundur Jónasson, þingmaður Vinstri - grænna, benti á að frumvarpið væri samkvæmt samningi sem forseti Alþingis hefði gert við þingflokksformenn allra flokka nema Vinstri grænna. Fyrri hlutinn hefði verið efndur með breytingum á þingskaparlögum fyrir áramót en síðari hlutinn sneri að aðstoðarmönnum þingmanna. Hvorugt frumvarpanna væri samkvæmt hugmyndum Vinstri - grænna og því gætu þingmenn flokksins ekki stutt það. Vísaði Ögmundur til umræðna Vinstri - grænna um málið á þingi máli sínu til stuðnings.

Birgir Ármannsson tók einnig til máls og vísaði til álits meirihluta allsherjarnefndar sem liti svo á hér væri verið að stíga fyrstu skrefin í þá átt að auka aðstoð við þingmenn almennt. Fram kemur í því meirihlutaáliti að sterk rök séu fyrir því að allir þingmenn fái aðstoðarmenn og vill meirihluti allsherjarnefndar að hugað verði að því við fjárlagavinnu fyrir næsta ár.

Misjafn framgangur frumvarpa

Frumvarpið var samþykkt með 33 greiddum atkvæðum gegn einu en sex þingmenn sátu hjá. Mælt var fyrir frumvarpinu þann 21. febrúar og síðan þá hefur það verið rætt í fimm klukkustundir og 34 mínútur.

Þess má geta að Valgerður Bjarnadóttir, varaþingmaður Samfylkingarinnar, mælti í lok október fyrir frumvarpi um breytingar á eftirlaunum æðstu embættismanna landsins þannig að eftirlaun þeirra verði í meira samræmi við almenna ríkisstarfsmenn. Því frumvarpi var vísað til allsherjarnefndar þar sem það situr enn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×