Aðstoðarmannafrumvarp samþykkt eftir fimm og hálfs tíma umræður 12. mars 2008 14:16 MYND/Stefán
Þingmenn samþykktu á Alþingi í dag frumvarp um þingfararkaup alþingismanna og þingfararkostnað sem gerir ráð fyrir að hluti þingmanna fái aðstoðarmann. Frumvarpið var samþykkt eftir rúmlega fimm og hálfs tíma umræðu á þingi.Samkvæmt frumvarpinu er gert ráð fyrir formenn stjórnmálaflokka í stjórnarandstöðu eigi rétt á að ráða sér aðstoðarmann í fullt starf en þingmenn Norðvestur-, Norðaustur- og Suðurkjördæma eiga rétt á að hafa aðstoðarmann í þriðjungsstarfi. Þó geta þingmenn slegið saman í einn aðstoðarmann, það er þrír landsbyggðarþingmenn geta deilt einum aðstoðarmanni.Ögmundur Jónasson, þingmaður Vinstri - grænna, benti á að frumvarpið væri samkvæmt samningi sem forseti Alþingis hefði gert við þingflokksformenn allra flokka nema Vinstri grænna. Fyrri hlutinn hefði verið efndur með breytingum á þingskaparlögum fyrir áramót en síðari hlutinn sneri að aðstoðarmönnum þingmanna. Hvorugt frumvarpanna væri samkvæmt hugmyndum Vinstri - grænna og því gætu þingmenn flokksins ekki stutt það. Vísaði Ögmundur til umræðna Vinstri - grænna um málið á þingi máli sínu til stuðnings.Birgir Ármannsson tók einnig til máls og vísaði til álits meirihluta allsherjarnefndar sem liti svo á hér væri verið að stíga fyrstu skrefin í þá átt að auka aðstoð við þingmenn almennt. Fram kemur í því meirihlutaáliti að sterk rök séu fyrir því að allir þingmenn fái aðstoðarmenn og vill meirihluti allsherjarnefndar að hugað verði að því við fjárlagavinnu fyrir næsta ár.Misjafn framgangur frumvarpaFrumvarpið var samþykkt með 33 greiddum atkvæðum gegn einu en sex þingmenn sátu hjá. Mælt var fyrir frumvarpinu þann 21. febrúar og síðan þá hefur það verið rætt í fimm klukkustundir og 34 mínútur.Þess má geta að Valgerður Bjarnadóttir, varaþingmaður Samfylkingarinnar, mælti í lok október fyrir frumvarpi um breytingar á eftirlaunum æðstu embættismanna landsins þannig að eftirlaun þeirra verði í meira samræmi við almenna ríkisstarfsmenn. Því frumvarpi var vísað til allsherjarnefndar þar sem það situr enn.
Mest lesið Fær nýjar kröfur fimmtán mánuðum eftir andlát eiginkonunnar Innlent Fjölskyldur hafi þegar hætt við að flytja aftur til Grindavíkur Innlent „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Innlent Tryggvi Gíslason er látinn Innlent Stefna á að opna kaffistofuna síðar í þessum mánuði Innlent Marius sleppur ekki eftir allt saman Erlent Vegasjoppan sem byggði kamar fyrir Kristján tíunda Innlent Gerir Repúblikönum á þingi enn lífið leitt Erlent „Þetta er hreinn uppspuni“ Innlent Leiðtogaskipti hjá Sósíalistaflokknum Innlent Fleiri fréttir Þorsteinn Ólafsson er látinn Grikki með tugi kílóa kókaíns undir fölsku gólfi Starfsleyfi takmarkað vegna lyfjaávísana Leiðtogaskipti hjá Sósíalistaflokknum Bein útsending: Ræða öryggis- og stjórnmálasamstarf á Eystrasaltssvæðinu Fjölskyldur hafi þegar hætt við að flytja aftur til Grindavíkur Eldhúsdagur runninn upp Fræsa og malbika Reykjanesbraut við Smáralind í kvöld Tryggvi Gíslason er látinn Öskur, reykelsisfnykur, greiðslufall og gámarót Stefna á að opna kaffistofuna síðar í þessum mánuði Samþykkt frumvarpsins framkalli ekki sigurtilfinningu Vegasjoppan sem byggði kamar fyrir Kristján tíunda Hlekktist í lendingu á Egilsstaðaflugvelli Fær nýjar kröfur fimmtán mánuðum eftir andlát eiginkonunnar Sósíalisti fékk boðsferð til Kína Olíumengun í Kópavogslæk „Netglæpamenn munu nýta sér þetta hratt og á skaðlegan hátt“ No Borders hvetja til andspyrnu gegn brottfararstöð Hringbraut eins og rússnesk rúlletta Handtekinn á bíl með nagladekkjum „Þetta er hreinn uppspuni“ Fjöldi netbrota fjórfaldast og dómsmálaráðherra í beinni um brottfararstöð „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Umdeild brottfararstöð leidd í lög Fimm úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald Hætta aftur rannsókn á Múlaborgarmálum Íbúar á flæðiskeri staddir eftir samdrátt í umsvifum Icelandair Telja Ríkisútvarpið bullandi hlutdrægt í ESB-málinu Landris og kvikusöfnun heldur áfram Sjá meira