Innlent

Tveir Litháanna sýknaðir af árás á lögreglu

Tveir af Litháunum þremur sem ákærðir voru fyrir að ráðast á lögreglumenn við skyldustörf í miðborg Reykjavíkur í janúar hafa verið sýknaðir af ákæru í Héraðsdómi Reykjavíkur þar sem ekki þótti komin fram lögfull sönnun fyrir aðild þeirra að árásinni. Þriðji maðurinn var hins vegar dæmdur í 60 daga fangelsi fyrir að slegið tvo lögreglumenn í andlitið.

Atvikið átti sér stað fyrir framan veitingastaðinn Monte Carlo á Laugaveginum en þar voru fjórir óeinkennisklæddir lögreglumenn við fíkniefnaeftirlit. Þar höfðu þeir afskipti af tveimur körlum og einnig konu þegar mennirnir þrír komu aðvífandi í tveimur bílum og túlkaði einn árásarmannanna það svo að verið væri að ráðast á konuna. Ráðist var á lögreglumennina og voru tveir þeirra fluttir á sjúkrahús vegna áverka, þar af annar með heilahristing. Fimm menn voru upphaflega handteknir í tengslum við málið en tveir þeirra voru ekki ákærðir.

Í ákæru var einum gefið að sök að hafa slegið tvo lögregluþjóna í andlitið og var hann sakfelldur fyrir það út frá framburði lögreglumanna.

Þremenningarnir voru svo í sameiningu ákærðir fyrir að ráðist á þriðja lögregluþjóninn og slegið hann ítrekað í höfuðið og sparkað í hausinn á honumþannig að hann hlaut meðal annars heilahristing.

Neituðu þeir sakargiftum og voru þeir sýknaðir þar sem hvorki lögreglumaðurinn né önnur vitni á vettvangi gátu borið um það hverjir það voru sem réðust á lögreglumanninn. Ákærðu hefðu verið á vettvangi en þar hefðu einnig verið tveir félagar þeirra sem ekki voru ákærðir. Því taldi dómurinn ekki komna fram lögfulla sönnun fyrir sekt þeirra varðandi hina heiftarlegu árás.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×