Erlent

Thaksin lýsir yfir sakleysi sínu

Thaksin Shinawatra fyrrum forsætisráðherra Taílands lýsti yfir sakleysi sínu á fyrsta degi réttarhaldanna yfir honum fyrir spillingu í starfi.

Hann er ásakaður um að hafa notað völd sín til að útvega eiginkonu sinni hagstæða skilmála við kaup á fasteignum árið 2003. T

haksin var steypt af stóli af hernum árið 2006. Hann snéri nýlega heim aftur við mikinn fögnuð landsmanna sinna en segir að hann muni aldrei aftur taka þátt í stjórnmálum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×