Neyðarlög sett í Armeníu 1. mars 2008 20:35 Mótmælendur fylgjast með bíl sem stendur í ljósum logum í Jerevan höfuðborg Armeníu. MYND/AFP
Neyðarlög hafa verið sett í Armeníu á ellefta degi mótmæla gegn meintu svindli forsetakosninganna. Rober Kocharyan forseti undirritaði tilskipunina til að „forðast ógn gegn stjórnarskrárlegri reglu," er haft eftir forsetanum á fréttavef BBC. Að minnsta kosti einn er látinn eftir óeirðir dagsins samkvæmt heimildum Reuters fréttastofunnar, en neyðarlögin voru sett eftir að lögregla skaut viðvörunarskotum í loftið til að dreifa mótmælendum. Talið er að fjöldi manns hafi slasast en ekki er ljóst hvort það var vegna skota lögreglunnar. Serzh Sarkisian forsætisráðherra vann kosninguna gegn stjórnarandstöðuleiðtoganum Levon Ter-Petrosian sem er einnig fyrrverandi forseti og segist vera í stofufangelsi. Mótmælin hófust að nýju eftir að lögregla hreinsaði Frelsistorgið svokallaða í höfuðborginni Jerevan af mótmælendum sem höfðu búið um sig þar frá úrslitum kosninganna. Neyðarlögin verða í gildi til 20. mars en stjórnarandstaðan segist munu halda mótmælum áfram. Opinberar tölur sýndu að Sarkisian hlaut 53 prósent atkvæða í forsetakosningunum en Ter-Petrosian 21,5 prósent. Alþjóðlegir eftirlitsaðilar sögðu kosningarnar hafa farið lýðræðislega fram.
Mest lesið Slys á Miklubraut: Einn fluttur á sjúkrahús og einn bíll tjónaður Innlent Slysið á Miklubraut „mjög alvarlegt“ og óskað eftir vitnum Innlent Sendi rangt skjal á dómarann og nú þarf að flytja málið upp á nýtt Innlent Hvetur til allsherjarverkfalls ef Trump reynir að stela þingkosningunum Erlent Grunaður um grófa spillingu í kjölfar birtingar Epstein-skjala Erlent Mátti ekki kalla Samtökin '78 „hagsmunasamtök barnaníðinga“ Innlent „Flókið að koma saman framboði með fjóra flokka“ Innlent Sorglegt að sonurinn sé aðeins tala á blaði Innlent Hátt settur leyniþjónustumaður skotinn og særður í Moskvu Erlent Fór ekki á milli mála að Jón Þór ætlaði að drepa hana Innlent Fleiri fréttir Hátt settur leyniþjónustumaður skotinn og særður í Moskvu Fór í flugtak af akbraut og hafnaði úti á grasi Bandaríkjamenn og Rússar taka upp formleg samskipti á ný Hvetur til allsherjarverkfalls ef Trump reynir að stela þingkosningunum Grunaður um grófa spillingu í kjölfar birtingar Epstein-skjala Segir 55 þúsund hermenn fallna en margra sé saknað Vara við uppgangi Íslamska ríkisins Sjónvarpskona biður mannræningja um sönnun þess að móðir hennar lifi enn Demókratar unnu orrustu í kjördæmastríðinu Vildi ekki hitta miðvinstriþingmenn í heimsókn til Washington Sendi Trump tóninn vegna Taívan Brast í grát fyrir dómi: „Ég er þekktur fyrir að vera sonur mömmu“ Segir brýnt að semja um áframhaldandi fækkun kjarnavopna Starmer gagnrýndur af samflokksmönnum sínum Segist sjá eftir hverri mínútu með Epstein Skammaði fréttakonu fyrir að brosa ekki Fyrstur til að rjúfa 800 milljarða dala múrinn Einungis einn herforingi eftir í miðstjórn kínverska hersins Lögregla hefur rannsókn á samskiptum Mandelson og Epstein Segir Bill og aðra þurfa að svara fyrir tengsl sín við Epstein Játaði nokkrum ákæruliðum en neitaði nauðgununum Fangelsaður fyrir innbrot á dvalarstað Taylor-Joy Fyrrverandi eiginmaður Bidens ákærður fyrir morð Íranar reyndu að stöðva danskt olíuflutningaskip Segir að Repúblikanar eigi að „þjóðnýta“ næstu kosningar Chomsky sagði Epstein að hann dreymdi um Karíbahafseyju Tunglskotinu frestað til mars vegna leka Húsleit hjá X í Frakklandi vegna barnaníðsmynda Fórnarlömb vilja láta loka á Epstein-skjölin Bill og Hillary Clinton samþykkja að svara spurningum um Epstein Sjá meira