Lífið

Siggi Hall hættir á Óðinsvéum

Siggi Hall hefur rekið veitingastaðinn í átta ár við góðar orðstýr.
Siggi Hall hefur rekið veitingastaðinn í átta ár við góðar orðstýr. MYND/Vilhelm

Meistarakokkurinn Siggi Hall er hættur á samnefndum veitingastað á Hóteli Óðinsvéum. Veitingastaðnum hafi verið lokað vegna breytinga og ráðgert sé að opna nýjan og stærri stað um miðjan febrúar.

„Það  verða töluvert miklar breytingar á staðnum," segir Linda Jóhannsdóttir, einn nýju eigendanna. ,,Telma Friðriksdóttir arkitekt er búin að teikna alveg nýjan veitingastað og nýja hótelmóttöku. Við erum í raun að bæta aðstöðu hótelgesta í leiðinni," segir Linda, en að auki verður komið fyrir hótelbar inni á veitingastaðnum og nýrri fundaaðstöðu.

Staðurinn mun skipta um nafn við breytingarnar, en Linda vildi ekki upplýsa hvað það yrði að svo stöddu. Eyþór Rúnarsson, meðlimur í íslenska kokkalandsliðinu, verður áfram yfirmatreiðslumaður staðarins. Þá hefur Ágúst Guðmundsson verið ráðinn veitingastjóri á nýja staðnum.

Linda segir að breytinga sé að vænta á matseðlinum. Áhersla verði lögð á árstíðabundið hráefni og matargerðarlist frá Frakklandi, Ítalíu og Spáni. Þá verður bætt inn smáréttum, og verðbilið breikkar því.

Blaðamaður Conde Nast hreifst mjög af staðnum fyrir nokkrum árum, og var sérstaklega uppveðraður yfir saltfiskinum. Staðurinn komst á „Hot List" blaðsins, fyrstur íslenskra staða. Linda segist reikna með því að saltfiskurinn góði verði ekki langt undan á nýja seðlinum.

Siggi hefur rekið staðinn í átta ár, og ávallt verið mjög sýnilegur, gengið á milli borða og spjallað við gesti. Aðspurð segir Linda að það verði ekki hlaupið að því að fylgja í þau fótspor „Það verður klárlega öðruvísi, það reynir enginn að leika eftir Sigga og ætlar sér ekkert að gera það. Við ætlum bara að byggja á því að búa til gott andrúmsloft."

Eigendur Hótel Óðinsvéa og nú nýir eigendur veitingastaðarins eru Ellert Finnbogason hótelstjóri, Linda Jóhannsdóttir fjármálastjóri og fyrrum fjármálastjóri Baugs og Heklu, Magnús Stephensen starfandi stjórnarmaður XL Leisure Group, Hannes Hilmarsson forstjóri og aðaleigandi Air Atlanta Icelandic og Jóhann Gunnarsson verktaki.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.