Lífið

Sonur Sigríðar Snævarr og Kjartans Gunnarssonar skírður

Sigríður Snævarr.
Sigríður Snævarr. MYND/Frétt
Litli sonur Sigríðar Snævarr og Kjartans Gunnarssonar var skírður á sunnudaginn. Hann hlaut nafnið Kjartan Gunnsteinn. Sigríður sagði í samtali við Vísi að Gunnsteins nafnið væri í höfuðið föður hennar, Gunnsteini Ármanni Snævarr.

Kjartan Gunnsteinn er sex mánaða gamall, fæddist fimmta júlí síðastliðinn. Fæðing hans vakti mikla athygli, en Sigríður var þá 55 ára gömul og því elst íslenskra kvenna til að ala barn svo vitað sé.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.