Bush beitir neitunarvaldinu á vatnspyntingafrumvarpið 8. mars 2008 21:37 George Bush segir ekki koma til greina að banna CIA að beita vatnspyntingum.
George Bush Bandaríkjaforseti hefur beitt neitunarvaldi sínu til þess að koma í veg fyrir að frumvarp sem meðal annars bannar vatnspyntingar verði að lögum. Frumvarpið hefði gert það að verkum að leyniþjónustunni CIA hefði verið óheimilt að beita harkalegum aðferðum við yfirheyrslur yfir grunuðum hryðjuverkamönnum. Vatnspyntingar hafa verið harðlega gagnrýndar eftir að upp komst um að CIA hefði notað aðferðina en þá er vatni hellt yfir vit fangans þannig að honum finnst hann vera að drukkna. „Frumvarpið sem þingið sendi mér hefði bannað notkun á einu öflugasta vopninu sem við höfum að ráða í stríðinu gegn hryðjuverkum," sagði Bush í vikulegu útvarpsávarpi sínu. „Þessvegna beitti ég neitunarvaldinu í dag." Þingið, sem lýtur stjórn demókrata kom frumvarpinu í gegn en alla tíð var talið nær öruggt að Bush myndi beita neitunarvaldinu. „Þetta er slæmur tími fyrir þingið að banna aðferðir sem hingað til hafa orðið til þess að tryggja öryggi í Bandaríkjunum," sagði Bush ennfremur. Demókratar líta málið öðrum augum og hyggjast halda baráttunni áfram. „Pyntingar eru svartur blettur á Bandaríkjunum og við munum ekki hætta fyrr en frumvarpið nær fram að ganga," sagði Diane Feinstein, þingmaður demókrata.
Mest lesið Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Innlent Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Innlent Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Innlent Sýknaður eftir að hafa skotið mann til bana í dyragættinni Erlent Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Veður Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Innlent Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Ekki eina leiðin til að uppfylla skuldbindingar Íslands Innlent „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Innlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent Fleiri fréttir Sýknaður eftir að hafa skotið mann til bana í dyragættinni Hyggst ná öllu landsvæðinu af Hútum Öryggisstjóri segir af sér hjá OpenAI Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Mennirnir sem létust voru feðgar Yfir fimm þúsund handteknir í frönsku stúdentamótmælunum Hluturinn sem fannst í sjónum reyndist meinlaus Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Tveir látnir eftir skotárás í Noregi Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Þúsundir manna mótmæla í 50 borgum Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Fær umboðið í fangið fjórum dögum eftir uppgjöf Skipar sérstakan saksóknara vegna hópnauðgunar við Cornell-háskóla Boðaði ríkisstjórn á fund vegna mótmæla nemenda „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Sjá meira