Ég held mínu striki 9. mars 2008 20:58 Birgir Sævarsson verður ekki í Bandinu hans Bubba.
Birgir Sævarsson, 19 ára Reykvíkingur sem datt út úr Bandinu hans Bubba á föstudagskvöldið, segist sáttur með að hafa komist þó þetta langt. Hann er eðlilega fúll yfir því að hafa dottið út í hlutkesti en Bubbi gat ekki ákveðið sig hvor ætti að pakka saman, Birgir eða Vilhjálmur Örn. Lukkan var ekki með Birgi og því þarf hann að finna sér eitthvað annað að gera en að fara fyrir Bandinu hans Bubba. „Ég er fyrst og fremst sáttur með að hafa komist í þáttinn og þetta langt í honum," segir Birgir í samtali við Vísi. „Einhver þarf að detta út í hverjum þætti og í þetta skiptið var röðin komin að mér." Birgir segis þó ætla að halda sínu striki en hann hefur troðið upp víða um land sem trúbador. Svo er plata í vinnslu þar sem hann flytur frumsamið alternative rokk og spilar á öll hljóðfærin sjálfur. „Ég held mínu striki og reyni að komast áfram í þessum bransa," segir Birgir vígreifur. „Það er alls ekki gaman að detta út á þennan hátt, ég viðurkenni það. En við Villi erum báðir góðir söngvarar að mínu mati og því var þetta ágætis lausn hjá Bubba. Ég hefði ekki viljað vera í hans sporum" Birgir er himinlifandi með að hafa tekið þátt í Bandinu hans Bubba. „Þetta eru einir skemmtilegustu þættir sem gerðir hafa verið í íslensku sjónvarpi og pottþétt besti raunveruleikaþátturinn. Krakkarnir sem voru í þessu með mér eru orðin að mínum bestu vinum og sem dæmi þá er einn þeirra, hann Arnar, hjá mér í mat núna," segir Birgir sem er greinilega búinn að jafna sig að mestu frá því á föstudaginn. Aðspurður hver eigi eftir að vinna segir hann ómögulegt að gera upp á milli þeirra sex sem eftir eru í þættinum. „Mér finnst þau öll eiga jafnmikla möguleika á því að vinna þetta og ég óska þeim alls hins besta."
Mest lesið Dregur sig í hlé: „Þessi aumingja kona er að deyja beint fyrir framan okkur“ Lífið Gummi Google selur glæsihús á Grímshaga Lífið Dó ekki ráðalaus þegar filippseyska löggan mætti Tónlist Stjörnulífið: Heiðdís Rós komin heim Lífið Vill skapa staðinn sem sonur hennar þurfti en fann aldrei Lífið Opnar sig um þunglyndi og depurð Lífið Köngulóarmaðurinn slær sögulegt met Bíó og sjónvarp Sló pabba út með að kasta sér yfir línuna Lífið Fyrsta platan í tuttugu ár Lífið „Ég er svolítið svífandi á bleiku skýi“ Lífið Fleiri fréttir Dregur sig í hlé: „Þessi aumingja kona er að deyja beint fyrir framan okkur“ Opnar sig um þunglyndi og depurð Gummi Google selur glæsihús á Grímshaga Fyrsta platan í tuttugu ár Stjörnulífið: Heiðdís Rós komin heim Myndaveisla: Stjörnufans fyrir norðan á Einni með öllu „Ég er svolítið svífandi á bleiku skýi“ Sló pabba út með að kasta sér yfir línuna Vill skapa staðinn sem sonur hennar þurfti en fann aldrei Innipúki er ekki það sama og fýlupúki „Við getum ekki kvartað undan veðrinu“ Klukkutíma bröns getur kostað marga daga í rúminu Krakkatía vikunnar: Hungurleikar, biskup og geirfuglinn Big Pussy er látinn Fréttatía vikunnar: Vasaþjófar, KFC og morðhótanir Fiðrildi og flugeldar í maganum í Herjólfsdal Selur aflátsbréf fyrir forsjálustu syndgara helgarinnar Loðinn laumufarþegi sníkti far frá Úlfarsfelli Þjóðhátíð sett í blíðviðri í Eyjum Hættur í Jesus Christ Superstar eftir útgáfu lags til stuðnings Ísrael Ískaldur töffari, skapstór snillingur og afkastamikill vinnuþjarkur Árið sem skytturnar fjórar kvöddu Sam Smith trúlofað Halla Hrund og uglurnar þrjár Útför Megasar Gerði sátt við aðstoðarkonuna sem sakaði hann um nauðgun „Þegar við sáum kastalann var ekki aftur snúið“ Gladiator kveikti neistann við brennuna og úr varð ódauðlegt þjóðhátíðarlag Kíkti í kaffi til kanslarans Hvað veistu um… skák? Sjá meira