Lífið

Ummæli Bjarkar falla í grýttan jarðveg í Kína

Stuðningsyfirlýsing Bjarkar við sjálfstætt Tíbet á tónleikum hennar í Sjanghæ á sunnudag fer misvel í kínverskan almenning. Stjórnvöld og ríkisreknir fjölmiðlar hafa þagað þunnu hljóði yfir atburðinum, en spjallþræðir á netinu loguðu af reiðum athugasemdum eftir að ummælin láku út.

„Ég skil ekki hvað vestrænar stjörnur eru uppteknar af Tíbet. Við eigum Tíbet, lítið ykkur nær," „Ef hún sagði þetta í alvöru fær hún fólk til að æla," og „Það ætti að sekta þá sem bjóða upp á svona sora," voru meðal athugasemda á Sina.com, vinælu kínversku spjallsvæði.

CNN hefur eftir breskum tónleikagesti að andrúmsloftið eftir að Björk flutti síðasta lag sitt „Declare independece" hafi verið afar óþægilegt, og að fólk hafi hraðað sér út að tónleikum loknum.

Málefni Tíbet eru afar viðkvæm í Kína. 58 ára stjórn þeirra á þessu fyrrum sjálfstæða landsvæði við Himalaya hefur verið harðlega gagnrýnd af stjórnvöldum annarra landa og mannréttindasamtökum.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.