Lífið

Lily Allen missir fóstur

Söngkonan Lily Allen missti fóstur á dögunum, eftir rómantíska ferð með kærastanum, Chemical bróðurnum Ed Simons, til Maldive-eyja. Lily, sem er 22ja ára er sögð miður sín yfir atvikinu.

Þegar það kvisaðist út í síðasta mánuði að söngkonan væri þunguð sagðist hún afar hissa, enda voru barneignir ekki á dagskránni hjá parinu, sem var þá búið að vera saman í nokkra mánuði. Hún sagðist þó hlakka til að stofna heimili með Simons, sem er 37 ára, og hætta villtu líferni sínu.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.