Innlent

Sendi Kínverjum samúðarkveðju vegna hamfara

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, sendi í dag forseta Kína, Hu Jintao, samúðarkveðju vegna þeirra hörmunga sem orðið hafa í kjölfar jarðskjálftanna í Kína.

Fram kemur í tilkynningu frá forsetaskrifstofunni að atburðirnir hafi skapað öldu samúðar og stuðnings um allan heim. Hugur Íslendinga sé með fjölskyldum og vinum þeirra sem létu lífið eða slösuðust alvarlega. Þess sé óskandi að komandi ár færi þeim á ný styrk og von.

Forseti Íslands vék einnig í kveðjunni að samræðum sínum við Hu Jintao í Shanghai á liðnu ári og í Beijing árið 2005 þar sem hann vakti athygli á rannsóknum Íslendinga á sviði jarðskjálfta og hinu öfluga viðvörunarkerfi sem íslenskir vísindamenn og sérfræðingar hefðu þróað.

Sú þekking væri framlag Íslendinga til annarra þjóða sem byggju við slíkar hættur. Íslenska þjóðin hefði langa reynslu af jarðskjálftum og því hefðum við djúpan skilning á þeim hrikalegu afleiðingum sem þeir gætu haft í för með sér. Samúðarhugur Íslendinga væri með kínversku þjóðinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×